Kæri viðtakandi

Vinningshafar
Við drógum út þrjá vinningshafa af póstlista. Fyrsti vinningshafinn hlýtur 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastaðnum Gullfoss. Athugaðu hvort heppnin sé með þér með því að fara á forsíðu veitingastadir.is!. Að þessu sinni ætlar visitorsguide auk þess að gefa tvö gjafabréf að annað að andvirði 5 þúsund króna á Balthazar og hitt er hádegisverður fyrir 3 á Gullfoss. Hægt er að sjá vinningshafana hér.

Könnun
Eins og áður hefur komið fram leitum við leiða til bæta síðuna okkar. Í síðustu könnun báðum við um álit fólks á fréttabréfinu. Tekið var vel í þessa könnun og kom hún vel út (fyrir okkur). Eins og sést hérna voru rúm 90% af þeim sem tóku þátt í könunninni sáttir með síðasta fréttabréf.

Kíkið á forsíðuna og takið þátt í nýrri könnun, þar sem við spyrjum "Hvert af eftirtöldu finnst þér áhugaverðast í fréttabréfinu?"


Uppskrift mánaðarins
Uppskrift mánaðarins kemur að þessu sinni frá Perlunni og heitir:

Tonka Bruleé - Með kókosromm-kubb og karamelluís





1 l rjómi
800 gr hvítt súkkulaði
200 gr skyr
400 gr eggjarauður
400 gr sykur
1 st vanillustöng
2 st tonkabaunir

Rjómi, vanillustöng og raspaður tonka pipar sett í pott og soðið. Súkkulaði bætt útí. 
Sykur og eggjarauður hrært saman í skál. Vökvanum hellt varlega yfir eggin á meðan hrært er og geymt í kæli í 24 tíma.
Sett í brulee skálar og bakað á 90 °c í c.a 30 mín.


Kókos-rom kubbar
1250 ml kókosmjólk 
10 st matarlím (meira ef það eru minni )
50 gr malibu rum
200 gr sykur 1 st lime Mangosósa
250 gr mango
75 gr sykur

Karamelluís - Mynta - Súkkulaðiskraut - Jarðaber

Matarlím lagt í bleyti. Kókosmjólkin sett í pott og soðið aðeins niður bætt út í, matarlím leyst upp í malibu rum og svo er öllu blandað saman og sett í blandara og unnið. Sett í form og kælt. Skorið í fallega teninga.


Mango sósa 
Mangó hreinsað og sett í blandara ásamt sykri og unnið vel. Sett í pott og soðið. 

Þorleifur í Perlunni mælir með hvítvíninu Ch. Dulac eða Eiswein með þessum rétti.

Upplýsingar á forsíðu og tilboð
Á forsiðu okkur eru fréttir og annað skemmtilegt efni fyrir lesendur. Við viljum benda notendum á að finnist þeim eithvað vanta inn á á forsíðuna, eins og tilboð eða fréttir, látið okkur þá vita á netfangið veitingastadir@veitingastadir.is.

Umfjöllun um Panorama
Að þessu sinni var farið í veitingastaðinn Panorma, hann er með þá sérstöðu að hann er í miðbæ Reykjarvíkur og er með stórglæsilegt útsýni. Á Panorama er lagt sig fram við að bjóða upp á óhefðbunbið evrópskt og norrænt hráefni, setja það í blöndu af ný franskri og norrænni matreiðslu með það að leiðarljósi að hréfnin og upplifunin af matnum verði sem best, hvort sem hún er sjónræn eða með bragðlaukonum.

Til þess að lesa nánar um heimsókn okkar ýtið hér.


Nýskráningar á síðuna
Það gleður okkur að geta sagt frá því að veitingastaðurinn Dill sem er í Norræna húsinu er kominn á skrá á síðunni okkar. Dill er með þá sérstöðu að hafa ávallt eitthvað nýtt á matseðlinum, þeir skipta vikulega um matseðill. Einnig bættist Austur-Indía félagið inn en þess má geta að sá vinsæli veitingastaður er 15 ára á þessu ári. Veitingastaðurinn Eldbakan er nýskráður og býður staðurinn upp á eldbakaðar pizzur. Í hádeginu er boðið upp á hlaðborð, súpur og annað góðgæti. Kitchen á Laugarveginum slóst einnig í hópinn með litla skráningu en hann er eini nepalski staðurinn hér á landi.


Með bestu kveðju frá veitingastadir.is

  © 1998-2009  |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   sími: 511 2707   |   fax: 511 2708   |    netid@netid.is