Kæri viðtakandi

Vinningshafar
Að þessu sinni drógum út 3 vinningshafa af póstlista. Fyrsti vinningshafinn hlýtur gjafabréf á veitingastaðnum Orange, annar gjafabréf á Strikinu á Akureyri. Athugaðu hvort heppnin sé með þér með því að fara á forsíðu veitingastadir.is!. Auk þess gefur visitorsguide 1 gjafabréf sem er hádegisverður fyrir 2 á veitingastaðnum Gullfoss. Hægt er að sjá vinningshafana hér.

Könnun
Í síðustu könnun spurðum við hvað
fólki þætti áhugaverðast í fréttabréfinu. Eins og fram kemur hér voru uppskriftirnar efstar og næst á eftir er umfjöllun um veitingastað. Fljótlega verða allar umfjallanir okkar um veitingstaði sem birtar hafa verið á forsíðu, settar í sér flokk. Í nýrri könnun á forsíðu spyrjum við nú?

„Ætlar þú að ferðast innanlands í sumar?“

Í næsta fréttabréfi sem við sendum út væntanlega strax í næstu eða þarnæstu viku munum við segja frá ferðalögum innanlands og koma með ýmsar hagnýtar upplýsingar, einnig segja frá bókinni Visitor’s Guide sem fyrirtæki okkar gefur út, ásamt samnefndri vefsíðu. Á forsíðu vefjar má þar undir fréttir, meðal annars núna sjá myndir frá Þórsmörk frá síðustu helgi.


Upplýsingar á forsíðu og tilboð þar
Hótel Örk sem við höfum prófað og getum eindregið mælt með, frábært tilboð út júní. Einnig upplýsingar frá Perlunni. Þá er sagt frá mjög góðu sushi hádegisverðartilboði á Fiskmarkaðnum, 3ja rétta veislu á Silfrinu og annað efni fyrir lesendur. Við viljum benda notendum á að koma óhikað með ábendingar til okkar á netfangið veitingastadir@veitingastadir.is.


Humarskipið
Að þessu sinni var farið á veitingastaðinn Humarskipið, sem er við gömlu höfnina í miðbænum. Staðurinnkom að mörgu leyti á óvart, humarinn var sérlega góður og útsýnið frá staðnum var skemmtilegt. Til þess að lesa nánar um heimsókn okkar sem er á forsíðu vefjar ýtið hér.


Uppskrift mánaðarins:
Uppskrift mánaðarins kemur úr safni okkar, og okkur fannst humar og skötuselur passa vel núna, enda léttur og góður matur:



Einstaklega góður og fljótlegur réttur á grillið.

Hráefni
• 400 gr humarhalar (hreinsaður og bitaður).
• 400 gr skötuselur (hreinsaður og bitaður).
• Rauðlaukur, zucchini og paprika fyrir grillpinna -
magn ákvarðað eftir smekk

Matreiðsla
1. Hreinsaðu skötuselinn og humarinn og bitaðu síðan niður í hæfilega stóra bita. 
2. Settu skötuselinn, humarinn, rauðlaukinn, zucchini og paprikuna til skiptis á grillpinna. 
3. Grillaðu pinnann í eina til tvær mínútur á hvorri hlið á glóandi heitu grillinu. Má einnig steikja á pönnu. 
4. Saltaðu og pipraðu eftir smekk. 
5. Borið fram með salati og dressingu.

 



Nýskráningar á síðuna:
Það gleður okkur að segja frá því að veitingastaðurinn Silfur sem er við Austurvöll var nýlega skráður á síðuna okkar sjá silfur.is. Staðurinn er opin bæði í hádeginu og á kvöldin. Scandinavian brasserie og smörrebröd hefur nú bæst við á veitingastadir.is. Hjá þeim má fá ekta danskt smurbrauð og opið er hjá þeim frá klukkan 11:00-22:00.

Með bestu kveðju frá veitingastadir.is

  © 1998-2009  |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   sími: 511 2707   |   fax: 511 2708   |    netid@netid.is