Kæri viðtakandi

Fréttabréfið er að stórum hluta tileinkað ferðalögum innanlands enda margir á faraldsfæti þessa dagana og landið okkar er gullkista hvað það varðar. Vinningar eru fjölmargir að þessu sinni og eru nokkrir þeirra ferðalagatengdir. 

Áframsenda
Ef þú áframsendir þetta fréttabréf á þrjá aðila þá fer nafn þitt í sérstakann pott og þú hefur möguleika á veglegum vinning.  Vinningshafinn verður dregin út í byrjun ágúst og tilkynntur í næsta fréttabréfi.

Vinningshafar
Við drógum út 5 vinningshafa af póstlista. Fyrsti vinningshafinn hlýtur gjafabréf á veitingastaðnum Orange, annar fær gjafabréf á veitingstaðnum Gamla Bauk á Húsavík og svo sá þriðji Einkaklúbbskort. Athugaðu hvort heppnin sé með þér með því að fara á veitingastadir.is! Auk þess gefur visitorsguide og fleiri 3 vinninga.  Meðal þeirra eru frábær vinningur frá íslenskum fjallaleiðsögumönnum (sjá neðar í fréttabréfi) að verðmæti kr. 16.400. Þessir 3 vinningar eru á forsíðu visitorsguide.is

Fésbókin
Við erum núna komin á Facebook.  Við munum meðal annars segja vinum okkar þar frá góðum tilboðum í samvinnu við samstarfsaðila okkar, auk annars áhugaverðs efnis. 
Smelltu hér til að gerast vinur okkar á Facebook.

Upplýsingar á forsíðu og tilboð:
Á forsíðu er að venju sagt frá nokkrum tilboðum sem eru í gangi á veitingastöðum bæði 3ja og 4ra rétta matseðlar sem og góð hádegistilboð.

Umfjallanir um veitingastaði – Orange
Búið er að setja upp flokk með þeim umfjöllunum sem við höfum staðið fyrir, hægt er að fara inná hann beint hér.  Þar munu smám saman bætast við fleiri umfjallanir.  Að þessu sinni er umfjöllun um veitingastaðinn Orange einnig er stutt umfjöllun um hádegisheimsókn á Rauða Húsið á Eyrabakka.

Einkaklúbburinn – um allt land
Einkaklúbburinn er rótgróinn veitingastaða- og afsláttarklúbbur, sem veitir afslætti og fríðindi víða um landið.  Út var að koma ný Árbók klúbbsins með fullt af frábærum afsláttarsamningum og fjölmörgum veitingahúsatilboðum (2 fyrir 1) um allt land.  Nefna má staði eins og Ruby Tuesday, Einar Ben, Grillhúsið, Silfur og Hamborgarabúlluna.  Einnig t.d. Bryggjuhúsið og Strikið á Akureyri.  Allir geta gengið í Einkaklúbbinn gegn greiðslu vægs árgjalds, sem er fljótt að borga sig. Upplýsingar á www.ek.is og í síma 577 2222.



Visitor‘s guide bókin 2009-10

Bókin á 10 ára afmæli á þessu ári og er af því tilefni sérlega vegleg.  Bókin er í stóru A6 broti og er 212 blaðsíður með góðum kortum meðal annars af Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri og Íslandskorti. Auk þess er hún á vefsíðu okkar www.visitorsguide.is  þar sem bæði er hægt að skoða hana á skjá eða hlaða niður sem pdf skjal. Í bókinni er mikið af upplýsingum sem höfða til erlendra ferðamanna auk Íslendinga, þar má nefna upplýsingar og opnunartíma allra sundstaða í Reykjavík, upplýsingar um hesta, hvali, norðurljós, fugla, tölfræði og margt margt fleira.  Ýmsir kaflar í nýju bókinni hafa verið endurbættir og ber þar helst að nefna kaflann “Countryside and Accommodation”.

Að þessu sinni var lögð mikil áhersla á að auka upplýsingar um einstaka landshluta utan Reykjavíkur, ekki síst vegna þeirra Íslendinga sem eru á faraldsfæti í sumar.  Þannig eru hnitmiðaðar upplýsingar á 3-12 blaðsíðum um hvern landshluta.  Þar er sagt frá því helsta markverða í viðkomandi landshluta auk þess sem við mælum með nokkrum veitingastöðum. Einnig er að sjálfsögðu hægt að leita að veitingastöðum á landsbyggðinni með leitarvélinni á www.veitingastadir.is , en um þessar mundir erum við að yfirfara upplýsingar um nýja staði úti á landi.

Í bókinn er útdraganlegt Íslandskort sem er brotið saman í miðri bók á því eru ýmsar hagnýtar upplýsingar til að mynda um fjarlægðir milli áfangastaða á landsbyggðinni. Þar eru meðal annars merktar inn allar bensínstöðvar Shell og Orkunnar um landið.  Hægt er meðal annars að nálgast bókina á öllum bensínstöðvum Shell á landsbyggðinni.  Upplýsingar eru í kaflanum um gistingu á Icelandair og Eddu hótelunum, einnig á Hringhótelunum sem eru á Akureyri, Stykkishólmi, Ólafsvík, Reyðarfirði og Egilsstöðum. Einnig á hótelum og völdum gistiheimilum í Reykjavík.

Norðurland, Akureyri, Húsavík og fleira
Alls eru 10 bls. tileinkaðar Norðurlandi þar af eru 6 bls. um Akureyri með upplýsingum um söfn, gistiheimili og helstu veitingastaði í bænum þar með talið nokkra sem skráðir eru á veitingastadir.is svo sem Strikið, Rub 23 og Friðrik VHúsavík er gerð skil á einni opnu en bærinn hefur verið kallaður höfuðborg hvalaskoðunar Evrópu og það með sanni.  Við hjá Visitorsguide getum sannarlega mælt með fyrirtækinu Norðursiglingu í hvalaskoðun eftir að hafa prófað ferð þar síðasta sumar.  Það lá við að hægt væri að klappa hvölunum, slík var nálægðin.  Á Húsavík eru einnig nokkrir veitingastaðir, þar ber helst að nefna Gamla Bauk sem er niður við höfn.  Nokkur gistiheimili, góð sundlaug, söfn og fleira er í bænum allt góðar ástæður til að heimsækja þennan fallega bæ. Þá eru margar náttúruperlur í næsta nágrenni svo sem Mývatn, Ásbyrgi og Dettifoss.

Fleira áhugavert
Fyrir þá sem fara í vesturátt má sérstaklega benda á hið skemmtilega safn og sýningu Landnámssetrið í Borgarnesi  - t (sjá bls. 104 í menningarkaflanum í bók), þar er einnig ágætur veitingastaður auk frábærrar sundlaugar. Snæfellsnesið er svo ekki langt undan með sína uppsprettu af orku og stórbrotnu landslagi.

Íslenskir fjallaleiðsögumenn
(Icelandic Mountainguides) - bjóða uppá fjölbreyttar ferðir bæði göngu á jökli á Sólheimajökul með mörgum brottförum á dag og eins frá Skaftafelli á Vatnajökli.  Þar er auk jöklagöngu boðið uppá ferðir á Hvannadalshnúk (hægt að fara á toppinn frammí ágúst ef skilyrði leyfa).  Við hjá Visitorsguide prófuðum það síðasta sumar, sjá myndir frá ferðinni hér.

Bókina Visitor’s Guide er gott að hafa með í ferðalaginu.  Hana er hægt að nálgast á öllum upplýsingamiðstöðvum á stór- Reykjavíkursvæðinu, einnig hótelum og gistiheimilum auk upplýsingamiðstöðva, bensínstöðva og á fleiri stöðum víðar um land.  Fyrir ítarlegri upplýsingar bendum við á bókina á Á ferð um Ísland (e. Arround Iceland), einnig er Vegahandbókin með nánari upplýsingar. 

Með bestu kveðju frá veitingastadir.is

  © 1998-2009  |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   sími: 511 2707   |   fax: 511 2708   |    netid@netid.is