|

Kæri viðtakandi
Vinningshafar
Við drógum út vinningshafa af póstlista. Vinningshafinn hlýtur gjafabréf á veitingastaðnum Orange. Athugaðu hvort heppnin hafi verið með þér með því að fara á forsíðu veitingastadir.is!? Einnig drógum við vinningshafann af þeim sem áframsemdu fréttabréfið til annarra í sumar. Sú heppna var Hrönn Hreiðarsdóttir og hlýtur hún 5.000 kr gjafabréf á Tapas barnum og Einkaklúbbskort.
Fésið
Við minnum á við erum á Facebook. Við munum meðal annars segja vinum okkar þar stundum frá tilboðum eða öðru áhugaverðu efni. Smelltu hér til að gerast vinur okkar á Facebook.
Könnun
Seinasta könnun kom skemmtilega á óvart. Meiri hlutinn af þeim sem svöruðu ætluðu að ferðast innanlands í sumar, mjög lítill munur var á hversu margir ætluðu að ferðast mikið og lítið einsog hægt er að sjá hér til hliðar.
Skráningar á vefsíðuna
Veitingastaðir eru með misstórar skráningar á vefsíðuna, þeir sem eru með stærstu skráningarnar eru með fjölda leitarorða, myndir – jafnvel kúlumyndir, texta um staðinn o.fl. Þessir veitingastaðir eru í stafróðsröð, Argentína steikhús, Café París, Einar Ben, Fiskmarkaðurinn, Gullfoss, Humarskipið, Orange og Silfrið.

Einnig eru 2 afbragðs hótel með stóra skráningu. Það eru Hótel Rangá og Hótel Örk, bæði eru með góða veitingstaði og skemmtileg tilboð í gangi núna, m.a. fá afmælisbörn októbermánaðar gistingu á hótel Rangá fyrir aðeins 10 kr!. Við getum sannarlega mælt með þeirri tilbreytingu að fara út fyrir borgina og gista og borða vel. Verðið kemur líka oft á óvart sérstaklega utan háanna ferðamannatímans. Vor og haust eru því góður tími fyrir slíka afslöppun.

Uppskrift mánaðarins: Grænmetis Risotto
Kemur að þessu sinni frá Ráðlagður Dagskammti sem bjóða starfsfólki fyrirtækja að koma með hollan og bragðgóðan heimilismat í hádeginu. Áhersla er lögð á fjölbreytni, ferskt hráefni og góða þjónustu. Allar veitingar eru framleiddar í eldhúsi þeirra án óæskilegra aukaefna.
Í boði á hverjum virkum degi er fiskréttur, kjötréttur og grænmetisréttur sem hægt er að velja um.
Hráefni
500 gr. Arborio hrísgrjón - Ólífuolía - ca 10 msk. ( 5 fyrir grjón og 5 fyrir grænmetið )

 |
1 laukur - smátt saxaður
2 hvítlauksrif - smátt söxuð
Hvítvín - 1/2 bolli
Grænmetissoð eða vatn m. grænmetiskrafti ( byrja m. 2 bolla en auka við ef þarf )
1 peli rjóma
1 lúka rifinn parmesanostur
1 - 2 tsk sjávarsalt
Gróft skorið grænmeti eftir smekk ( t.d. kúrbítur, blómkál, spergilkál, paprika, gulrætur, snjóbaunir )
Matreiðsla
Aðferð: Olían sett í pott og hituð vel m. söxuðum lauk, steikt í smá stund. Hvítlauk bætt við og steikt áfram. Hrísgrjónum bætt við beint úr pakkningu í pottinn og steikt í olíunni ( hræra stöðugt í með sleif til að þekja öll grjónin ) Hvítvíni og grænmetissoði ásamt salti bætt við. Grjónin eru soðin við vægan hita en hrært í við og við. Passa verður að bæta við vökva því grjónin mega ekki þorna of mikið. Suðutími er ca. 20 mín og mikilvægt er að grjónin séu soðin "al dente" ( þ.e. ekki mauksoðin )
Að lokum er rjóma og parmesan bætt út í og hitað í grjónunum. Léttsteikja þarf grænmetið á pönnu á meðan hrísgrjón eru soðin og byrja á því grænmeti sem lengri steikningatíma þarf.Loks er grjónum og grænmeti blandað saman og borið fram með t.d. góðu hvítvíni, grófu brauði, svörtum pipar og parmesanosti
Verði ykkur að góðu
Ráðlagður Dagskammtur
Með bestu kveðju frá veitingastadir.is
© 1998-2009 | NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | sími: 511 2707 | fax: 511 2708 | netid@netid.is
|