Kæri viðtakandi

Nýr vinningshafi

Við drógum 2 nýja vinningshafa af póstlista nýverið sem hljóta annars vegar gjafabréf í innanhúsráðgjöf frá InRoom design og hinsvegar gjafabréf á veitingastaðinn Argentínu. Athugaðu hvort það varst þú sem varst heppin(n) með því að fara á forsíðu www.veitingastadir.is eða með því að smella hér.

Síðasta könnun
Í síðustu könnun á spurðum við hvern af eftirtöldum stöðum viðkomandi teldi bestan og niðurstaðan er í sviga;
 Hótel Holt (35%) Grillið (35%) Sjávarkjallarinn (22%) Silfur (8%)
Það var hnífjafnt á milli Holtsins og Grillsins, enda þessir 2 staðir af mörgum taldir bestu veitingastaðir bæjarins. Í núverandi könnun er spurt hvort fólk ætli á jólahlaðborð í ár. Taktu þátt með því að fara á forsíðu vefsins.

Nýjar skráningar á vefsíðuna
Nokkrir nýir staðir hafa bæst við nýverið á vefsíðuna með stórar skráningar með myndum, leitarorðum og fleira. Það eru: Gallery Restaurant - Hótel Holti, Einar Ben, Gullfoss - Sushi og Grill, Fiskmarkaðurinn og Café París

Heimsókn á Hótel Holt
Í október heimsóttum við veitingastaðinn Gallery veitingahús á Hótel Holti. Við völdum okkur 2 forrétti og aðalrétti af hádegismatseðli. Það er skemmst frá því að segja að Holtið stóðst okkar væntingar og vel það. Í forrétti snæddum við djúpsteiktar saltfiskbollur, með salati og ristaða hörpuskel og rækjur í sellerírótars-rekkju ásamt lárperu. Aðalréttir voru stökk Kirkjubæjarklausturs bleikja með steiktum kartöflum og piparsósu, nautasteikin með strengjabaunum reyndist svo alveg sérlega góð, hæfilega steikt og sérstaklega vel úti látin og safarík. Þjónustan var mjög góð og maturinn til að mynda betri en í heimsókn á Operukjallarann í Stokkhólmi fyrr á árinu sem er Michelin staður.

Jólahlaðborð
Nú er tími jólahlaðborða og jólamatseðla að renna upp en þau byrja á tímabilinu frá um 20. nóvember. Verð virðast oft vera svipuð og í fyrra þau lægstu frá um kr. 5000 til kr. 10.000 og er þá miðað við kvöld. Mjög oft er verð lægra mánudag til miðvikudags.
Á forsíðu vefsíðu okkar höfum við tekið saman upplýsingar um verð á jólahlaðborðum á völdum stöðum.

InRoom design
Að breyta aðeins getur gert kraftaverk og lyft heimili þínu upp og auk þess gert það mun seljanlegra.
Fyrirtækið InRoomDesign veitir alhliða innanhús ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hvort sem um ræðir litlar eða stórar breytingar, veisluskreytingar eða aðstoð við innkaup.


TellmeTwin

Viljum benda á sniðugan íslenskan vef, netsamfélagið TellmeTwin.com þar sem þú tekur persónuleikapróf eða gefur kvikmyndum, bókum, tónlist o.fl. einkunnir. Þú finnur síðan fólk sem hugsar og er eins og þú (tvífara þína) og notar þeirra prófíl til að uppgötva nýja hluti í lífinu (hvaða kvikmynd á að sjá næst o.s.frv.)

Með kveðju frá veitingastadir.is

  © 1998-2008   |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   sími: 511 2707   |   fax: 511 2708   |    netid@netid.is