Kæri viðtakandi
Jólahlaðborð
Á forsíðu höfum við tekið saman yfirlit með upplýsingum um verð og fleira á jólahlaðborðum á völdum veitingastöðum. Bæði er um að ræða staði á Stór-Reykjavíkursvæðinu og úti á landi þar með talið nokkra staði á Akureyri. Taktu endilega þátt í nýrri könnun á forsíðu þar sem við spyrjum hvort þú hyggist fara á jólahlaðborð í ár.
Vinningshafi
Í síðasta fréttabréfi vorum við með áframsendingarleik og vinningshafinn sem tilkynntur er á forsíðu er Valgerður sem fær 5.000 króna gjafabréf á Tapas Barinn. Þú mátt gjarnan senda áfram þetta fréttabréf á þá sem þú telur upplýsingarnar um jólahlaðborðið eiga erindi til. Hægt að gera það hér.
Tenglar á uppskrifarsíður
Á vefsíðunni er auk fjölda uppskrifta, mjög góður tengla listi yfir uppskriftarsíður sem hægt er að nota við öll tilefni. Hægt er að fara beint inná þetta með því að ýta hér eða myndina hérna við hliðiná. Láttu okkur gjarnan vita ef þú hefur ábendingu um góða uppskriftasíðu?
Með bestu kveðju frá veitingastadir.is
© 1998-2009 | NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | sími: 511 2707 | fax: 511 2708 | netid@netid.is
|