Smelltu hér ef þú getur ekki skoðað póstinn. | Smelltu hér til að prenta póstinn

Kæri viðtakandi

Nýr vinningshafi
Við drógum vinningshafa af póstlista sem hlaut gjafabréf á veitingastaðinn Tapas Barinn. Athugaðu hvort það varst þú sem varst heppin(n) með því að fara á forsíðu www.veitingastadir.is eða með því að ýta hér.

Tilboð og upplýsingar á forsíðu
Við vekjum athygli á ýmsum tilboðum og upplýsingum sem eru á forsíðu vefjar. Meðal þeirra er Hótel Örk með tilboð í mat og gistingu þá er hið árlega Allt í steik í Perlunni byrjað en þar er um að ræða 4ra rétta ljúffengann matseðil. Einnig mjög gott 3ja rétta tilboð á veitingastaðnum Silfur og tilboð á Tapas Barnum o.fl. Búið er að yfirfara síðu aðeins til að mynda með tilliti til verðflokka á veitingastöðum og fleira. Talsverð vinna er fólgin í því að yfirfara upplýsingar á jafn yfirgripsmiklum vef og þessum og ábendingar alltaf vel þegnar.

Nýjar skráningar og fréttir frá Saffran
Saffran er nýskráður á síðuna þar sem hægt er að sjá myndir og upplýsingar um staðinn. Veitingastaðurinn hefur getið sér gott orð fyrir góðan mat á hagstæðu verði. Saffran opnaði í Glæsibæ í mars í fyrra, en ágúst síðstliðnum bættist annar staður við á Dalvegi 4 í Kópavogi. Á staðnum er einnig veisluþjónusta Saffran sem býður fjölbreytta hóp- og veislumatseðla. Nýjustu viðbæturnar á hollan og framandi matseðil Saffran líta dagsins ljós í lok janúarmánaðar. Núðluhúsið á Laugarveginum er einnig komnir með skráningu en þeir eru þekktir fyrir mjög góðan thailenskan mat á hagstæðu verði.



Góð pasta uppskrift
Uppskriftin að þessu sinni kemur úr safni okkar og er kjúklingapasta sem er auð eldað og gott. Réttinn tekur um 40 mínútur að elda og er ætlaður fyrir 4-5.
Hráefni:
5 dl soðnar pastaskrúfur. 
2 dl maís úr dós.
1 grillaður kjúklingur.
200 g léttsoðið spergilkál.
1/2 saxaður blaðlaukur (hvíti hlutinn).
1 dós kjúklingasúpa.
1 msk. tómatkraftur (tomatpuree).
1 pressaður hvítlauksgeiri.
1 dl rjómi.
150 g rifinn óðalsostur.
4 msk. parmesan.

Matreiðsla:
1. Smyrjið eldfast mót og setjið pastaskrúfurnar í mótið.
2. Dreifið maísnum yfir, skerið kjúklingakjötið smátt og dreifið því yfir maísinn.
3. Setjið spergilkálið ofan á og dreifið blaðlauknum yfir.
4. Blandið saman súpunni, tómatkrafti, hvítlauk og rjóma og hellið yfir.
5. Rífið ostinn, blandið parmesan saman við hann og stráið yfir réttinn.
6. Bakið í 15-20 mínútur við 200 gráður.
7. Berið fram með hvítlauksbrauði.

Með bestu kveðju frá veitingastadir.is

  © 1998-2010  |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   sími: 511 2707   |   fax: 511 2708   |    netid@netid.is