Kæri viðtakandi
Nýir vinningshafar
Nýlega drógum við út 3 vinningshafa af póstlistanum okkar. Einn hlaut gjafabréf fyrir 3 á sushi hádegisverð hjá veitingastaðnum Fiskmarkaðurinn, annar vann gjafabréf á Tapas Barinn og sá þriðji vann gjafabréf fyrir 2 í jöklagöngu á Sólheimajökul með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Athugaðu hvort þú vannst með því að fara á forsíður www.veitingastadir.is og www.visitorsguide.is þar sem tilkynnt er hverjir vinningshafarnir eru. Einn vinningshafi í viðbót verður dregin út í lok vikunnar og tilkynntur á forsíðu og minnt á hann á Facebook síðunni.
-Facebook: Við eignumst sífellt fleiri og fleiri vini á Facebook og nú er um
að gera að verða vinur okkar vegna þess að vinur okkar númer 2.500 fær veglegan vinning af því tilefni. Á Facebook síðunni okkar birtum við stundum tilboð og gefum vinninga. 
Smelltu hér til að gerast vinur okkar.
Fréttir og tilboð á forsíðu vefjar
Á forsíðu vefjar eru að vanda upplýsingar frá nokkrum stöðum og minnt er á tilboð frá þeim: Þar má til dæmis nefna Sumarmatseðil Striksins á Akureyri og einnig eru á forsíðunni fréttir frá Saffran auk þess sem við minnum á hinn frábæra sushi kvöldseðil á Fiskmarkaðnum. Einnig er kominn ný könnun þar sem þú getur valið á hver af 3 öndvegis veitingastöðum þér finnst bestur.
Leitarorð, myndbönd og fleira
Á www.veitingastadir.is er hægt að leita að veitingastöðum eftir leitarorðum, dæmi um leitarorð eru t.d. veisluþjónusta, barnamatseðill og kaffihús. Þannig að auk þess að leita eftir veitingastöðum er einnig hægt að fá upplýsingar um veisluþjónustu sem fjöldi staða bíður upp á. Nokkrir veitingastaðir á vefsíðunni eru einnig með myndbönd þar sem má sjá t.d. húsnæði, útsýni, dæmi um rétti og í mörgum er einnig hægt að heyra helsta starfsfólk tala um veitingastaðinn og sjá það að störfum. Staðir sem eru með slík myndbönd eru t.d. Perlan, Fiskmarkaðurinn, Grillið og Pisa Ristorante í Lækjargötu sem nýlega var skráður á síðuna.
Ný og endurbætt Visitor´s Guide bók
Vinnsla á nýrri Visitor´s Guide bók er nú á lokasprettinum og ný bók kemur út í júní. Dreifing á bókinni er meðal annars á öll helstu hótel á Íslandi, fjölda gistiheimila, upplýsingaþjónusta, erlendis og víðar. Við getum sannarlega mælt með þeirri tilbreytingu að fara út fyrir borgina og gista, borða vel og slaka á. Verðið kemur líka oft á óvart sérstaklega utan háanna ferðamannatímans. Vor og haust eru því mjög góður tími fyrir slíka afslöppun. Upplýsingar um gististaði eru bæði á www.veitingastadir.is og www.visitorsguide.is.
Með bestu kveðju frá veitingastadir.is
© 1998-2010 | NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | sími: 511 2707 | fax: 511 2708 | netid@netid.is
|