Kæri viðtakandi
Fréttabréfið er nú að mestu tileinkað ferðalögum innanlands enda margir á ferðinni í sumar. Vinningar eru nokkrir og meðal annars ferðalagatengdir. Við biðjumst velvirðingar á því að fyrir smá tæknileg mistök fór fréttabréfið út í gær fyrir mistök, án þess að vera fullklárað.
Vinningshafar
Við drógum út 4 vinningshafa af póstlista. Einn vinningshafinn hlýtur gjafabréf á veitingastaðnum Domo en annar fær gjafabréf í jöklagöngu fyrir 2. Auk þess gefur visitorsguide 2 vinninga. Bæði vinning á veitingastað og í jöklagöngu með íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Athugaðu hvort heppnin sé með þér með því að fara á forsíðu veitingastadir.is og visitorsguide.is.
Ef þú vilt taka fyrirtækið þitt í flotta og eftirminnilega jöklagöngu með
Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum hafðu þá endilega samband við okkur, þar sem við getum veitt þér sérkjör ef um er að ræða hóp.
Upplýsingar á forsíðu, tilboð og könnun:
Á forsíðu er að venju sagt frá nokkrum tilboðum sem eru í gangi á veitingastöðum. Einnig er hægt að taka þátt í könnun, varðandi hvern þriggja veitingastaða þér þykir bestur: Sjávarkjallarinn, Fiskmarkaðurinn eða Fiskifélagið.
Visitor‘s guide bókin 2010-11
Bókin sem kom út fyrr í mánuðinum er í stóru A6 broti og er 227 blaðsíður með góðum kortum af Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Akureyri og útdraganlegu A4 Íslandskorti. Auk þess er hún á vefsíðunni www.visitorsguide.is þar sem bæði er hægt að skoða hana á skjá eða hlaða niður. Í bókinni er mikið af upplýsingum sem höfða til erlendra ferðamanna auk Íslendinga til að mynda hnitmiðaðar upplýsingar á 3-12 blaðsíðum um hvern landshluta. Auk þess sem við mælum með nokkrum veitingastöðum. Einnig er hægt að leita að veitingastöðum á landsbyggðinni með leitarvélinni á www.veitingastadir.is
Gisting víða um land og sumartilboð á Fosshótelum.
Á Íslandskortinu eru ýmsar hagnýtar upplýsingar, t.d. fjarlægðir milli
áfangastaða á landsbyggðinni. Þar eru meðal annars merktar allar
bensínstöðvar Shell og Orkunnar um landið en hægt er að nálgast bókina á bensínstöðvum Shell á landsbyggðinni. Einnig eru upplýsingar í kaflanum um gistingu meðal annars á Icelandair og Hringhótelunum. Einnig um Fosshótel sem bjóða upp á gistingu á 10 hótelum og 1 gistihúsi víðsvegar um landið, sem eru staðsett nálægt helstu náttúruperlum Íslands. Hvort sem leitað er eftir gistingu í Reykjavík eða á landsbyggðinni eru Fosshótel
góður kostur. Þjónusta þeirra er margvísleg og metnaður lagður í að skapa vinalegt og hlýlegt andrúmsloft sem hentar einstaklingum jafnt sem hópum. Fosshótel er í sumar með sérlega hagstætt tilboð í gangi sem ætti að henta mörgum. Hægt er að fá gistingu í 3 nætur á 39.000 kr eða 5 nætur á 49.000 kr. Tilboðið gildir fyrir 2 í tveggja manna herbergi með baði og morgunverði. Hægt er að nota tilboðið út september þannig að einnig er hægt að njóta haustsins á frábæru verði. Hægt er að bóka sumartilboðið í síma 562-4000 eða á marketing@fosshotel.is
Norðurland, Akureyri, Húsavík og fleira
Upplýsingar um Norðurland eru á 12 bls. þar af eru 8 bls. um Akureyri með upplýsingum um söfn, gistiheimili og helstu veitingastaði þar með talið nokkra á veitingastadir.is svo sem Strikið og Rub 23. Húsavík er gerð skil á einni opnu en bærinn hefur verið kallaður höfuðborg hvalaskoðunar Evrópu og það með sanni. Við hjá Visitorsguide getum sannarlega mælt með fyrirtækinu Norðursiglingu í hvalaskoðun eftir að hafa prófað ferð þar. Það lá við að hægt væri að klappa hvölunum, slík var nálægðin. Á Húsavík eru einnig nokkrir veitingastaðir, þar ber helst að nefna Gamla Bauk niður við höfn. Nokkur gistiheimili, góð sundlaug, söfn og fleira er í bænum allt góðar ástæður til að heimsækja þennan fallega bæ. Þá eru margar náttúruperlur í næsta nágrenni svo sem Mývatn, Ásbyrgi og Dettifoss.
Fleira áhugavert
Íslenskir fjallaleiðsögumenn (Icelandic Mountainguides) 
bjóða uppá fjölbreyttar ferðir, göngu á Sólheimajökul með mörgum brottförum á dag og eins frá Skaftafelli á Vatnajökul. Einnig er boðið uppá ferðir á Hvannadalshnúk (hægt að fara á toppinn framm í ágúst ef skilyrði leyfa). Við hjá Visitorsguide prófuðum það og hægt er að sjá myndir frá ferðinni hér.
Bókina Visitor’s Guide er gott að hafa með í ferðalaginu. Hana er hægt að nálgast á öllum upplýsingamiðstöðvum á stór- Reykjavíkursvæðinu, hótelum, gistiheimilum, bensínstöðvum og á fleiri stöðum víðar um land. Fyrir ítarlegri upplýsingar bendum við á bækurnar Á ferð um Ísland (e. Around Iceland) og Vegahandbókina.
Með bestu kveðju frá veitingastadir.is
© 1998-2010 | NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | sími: 511 2707 | fax: 511 2708 | netid@netid.is
|