|

Kæri viðtakandi
Við erum rausnarleg núna og gefum 5 vinninga :). Í fréttabréfinu er einnig sagt frá ákveðnum nýjungum á síðunni og nokkrum góðum tilboðum sem eru í gangi á veitingastöðum.
Vinningshafar
Við drógum út fjóra vinningshafa af póstlista. Fyrsti vinningshafinn sem er Guðrún Hrefna Sverrisdóttir hlýtur sushi hádegisverðarveislu fyrir 4 á Fiskfélaginu. Vinningshafi númer tvö er Edda Björk Rögnvaldsdóttir, hún fær gjafabréf í jöklagöngu fyrir 2 með íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Þriðji vinningshafinn sem er tilkynntur á Visitorsguide ferðasíðunni fær vinning sem er gjafabréf á Tapas Barinn. Athugaðu hvort heppnin er með þér með því að fara á forsíðu Veitingastadir.is og Visitorsguide.is. Fjórði vinningshafinn sem fær gjafabréf á Tapashúsið er tilkynntur á Facebook síðu veit.is. Að lokum getur þú átt kost á því að vinna vinning með því að svara einni laufléttri spurningu - Sjá nánar neðst í fréttabréfinu. En svarið er inná nýju dönsku síðunni okkar www.visitorsguide.dk. Sjá nánar neðst í fréttabréfinu.
Góð tilboð á forsíðu
Í október er sérlega gott tilboð hjá Austur-Indía félaginu sem er 5 rétta seðill á aðeins kr. 4990. Einnig er Tapas barinn sem á 11 ára afmæli á árinu með frábær verð og afmælisleik dagana 10. og 11. október, sbr. borða efst á forsíðu. Einnig segjum við frá mjög góðu hádegiverði á veitingastaðnum Silfur.
Nýir staðir og fréttir
Á forsíðu listum við að jafnaði upp nokkra staði sem nýlega hafa opnað. Þar ber hæst að nefna veitingstaðinn Tapashúsið við gömlu höfnina í Reykjavík. Staðurinn sem er í rúmgóðum húsakynnum með góðu útsýni opnaði í síðustu viku og er komin inná síðuna með góða skráningu. Nú er einnig hægt að leita á síðunni eftir leitarorðinu nýir staðir, þar sem fram koma helstu nýju staðirnir amk. þeir sem hafa látið okkur vita af tilvist sinni.
Álit á ferðavefsíðu
Sú nýjung er kominn á ferðavefsíðu okkar að hægt er að gefa fyrirtækjum á sviði afþreyingar og gistingar álit á ferðavefsíðunni www.visitorsguide.is, eins og hægt er með veitingastaði. Þetta er hægt bara fyrsta kastið fyrir þau fyrirtæki sem eru með skráningu með logo og umfjöllun. Þetta má gera hvort sem er á íslensku, eða ensku ef þú vilt að útlendingar sem einkum skoða síðuna sjái reynslu okkar innfæddu af ferðafyrirtækjum. Það væri vel þegið ef þú myndir gefa þitt álit á einhverjum fyrirtækja sem þú hefur prófað.
Ferðalög og ný könnun
Þar sem fyrirtækið vinnur einnig í ferðageiranum höfum við í hyggju að bjóða stöku sinnum uppá ferðir fyrir Íslendinga. Það gæti t.d. verið Hestaferð, Riverrafting, Riverjet, Jöklaferð eða ámóta. Jafnvel með gistingu líka. Haustið getur verið góður tími fyrir slíkt og verð hagstæðara. Við spyrjum í nýrri könnuninni hvort þú hefðir áhuga á upplýsingum um slíkt?

Visitor‘s Guide síða fyrir Danmörk
Fyrirtækið setti nýlega upp efnismeiri síðu fyrir Danmörk sjá www.visitorsguide.dk sem hluta af ákveðnu þróunar- og útrásarverkefni okkar. Fyrir eru síður í fleiri löndum m.a. á öllum Norðurlöndunum. Á síðunni er m.a. hægt að bóka hótel í Danmörku. Bráðlega fer stærri síða upp fyrir Svíþjóð og svo í nóvember fyrir Spán með mestri áherslu á Barcelona fyrsta kastið. Spurning okkar er hvað eru vefsíðurnar í mörgum löndum auk Íslands?, settu svarið á Facebook og þú ferð í pott og getur átt þess kost að fara ásamt 3 öðrum á Fiskfélagið í hádegis sushi veislu :).
Með bestu kveðju frá veitingastadir.is
Áframsenda póstinn
© 1998-2011 | NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | Kt. 611299 4789 | sími: 511 2707 |
| fax: 511 2708 | netid@netid.is |
|