|

Kæri viðtakandi
Nú gefum við fjóra vinninga. Í fréttabréfinu eru veittar upplýsingar um jólahlaðborð hjá fjölmörgum vetingastöðum, en einnig er sagt frá heimsóknum á veitingastaði og umsögnum. Einnig er sagt frá ferðasíðum okkar og samkeppni sem við efnum til í tengslum við myndbönd og ljósmyndir.
Vinningshafar
Fyrsti vinningshafinn sem dregin var út af póstlista okkar er Kristín Björg Kristjánsdóttir, en hún hlýtur gjafabréf fyrir tvo á jólahlaðborð LAVA BLÁA LÓNINU, ásamt fleiru. Annar vinningshafinn er tilkynntur á forsíðu www.veitingastadir.is og hlýtur 10.000 kr. gjafabréf á veitingastað - sjá í liðnum "könnun" hér að neðan. Þriðji vinningshafinn er tilkynntur á www.visitorsguide.se, sænsku ferðasíðu okkar og hlýtur sá gjafabréf á Tapas Barinn. Fjórði mögulegi vinningshafinn getur unnið sér inn gjafabréf, en nánar er fjallað um það í liðnum "myndbönd og myndir" neðar í fréttabréfinu .
Frábært tilboð á jólahlaðborð eða 3ja rétta máltíð
Silfur við Austurvöll býður upp á frábært tilboð á jólahlaðborð að kvöldi til, en fyrir aðeins kr. 3.900 geturðu farið á glæsilegt jólahlaðborð að kvöldi til (gildir frá mánudegi til miðvikudags), eða fengið 3 rétta kvöldverð að hætti hússins (gildir sunnudag til fimmtudag). Tilboðið fyrir 3ja rétta kvöldverð gildir í janúar og til 15. febrúar 2012 .
Til að eiga kost á þessu tilboði þarf að kaupa það hér á síðunni www.veitingastadir.is.
Jólahlaðborð, heimsóknir, umfjallanir um staði
Á forsíðu veitingastadir.is er "Tengill á Jólahlaðborð". Þegar smellt er á hann kemur ítarlegur listi yfir þau fjölmörgu jólahlaðborð sem í boði eru hjá þeim stöðum sem eru skráðir á síðunni. Þetta eru bæði staðir í Reykjavík sem og úti á landi. Þar má einnig finna verð á hádegismatseðlum og tilboðum, ef við á. Þetta auðveldar valið við jólahlaðborð og gagnast bæði einstaklingum og fyrirtækjum.
Nú á dögunum fórum við á veitingastaðinn Tapashúsið og prófuðum Tívólíveislu, en einnig heimsóttum við veitingastaðinn Shalimar. Umsagnirnar um staðina eru efst í flokknum Umsagnir um veitingastaði neðst á forsíðu. Láttu ekki þitt eftir liggja og settu inn eigin umsagnir um þá staði sem þú hefur heimsótt.
Ferðalög og ný könnun
Í síðustu könnun fréttabréfsins spurðum við hvort áhugi væri fyrir að fá stundum upplýsingar í sambandi við ferðalög, þar sem við störfum einnig í þeim geira. Yfirgnæfandi meirihluti svarenda, eða 84%, hafði áhuga á því. Á veitingastadir.is/kannanir/ má sjá niðurstöður þeirrar könnunarinnar sem og eldri kannana. Þar má m.a. sjá að um 60% svarenda hyggjast fara á jólahlaðborð í ár. Í nýjustu könnun okkar spyrjum við um hvern af eftirtöldum veitingastöðum; Grillmarkaðurinn, Tapas Barinn) þú myndir helst vilja fá 10.000 kr. gjafabréf á. Það er gjafabréfið sem vinninghafi nr. 2 hlýtur og er tilkynnt um á forsíðu vefjar.

Visitor's Guide síða bráðlega upp fyrir Spán og myndbönd á síðurnar
Fyrirtækið setti nýverið upp efnismeiri síður fyrir Danmörku og Svíþjóð (visitorsguide.dk og visitorsguide.se), en það er hluti af útrásarverkefni okkar. Í lok nóvember verður Spánarútgáfa hleypt af stokkunum þar sem aðal áherslan er lögð á Barcelona.
Allir hafa gaman að sjá skemmtileg myndbönd á vefnum og nú geta áhugasamir sent okkur slík myndbönd sem viðkomandi hefur gert sjálf/ur frá Íslandi, Danmörku, Svíþjóð eða Spáni, sem við birtum síðan á vefsíðum okkar. Við munum verðlauna það myndband sem okkur þykir best með veglegu gjafabréfi á veitingastað. Endilega sendið okkur tilvísun á hlekk, t.d. af Youtube eða öðrum sambærilegum myndbandavef, fyrir 15. desember, á veitingastadir@veitingastadir.is. Fallegar ljósmyndir geta einnig komið til greina. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og annað má finna á www.veitingastadir.is/myndbond.
Facebook upplyfting Flottara Facebook viðmót er komið á síðuna og nú er hægt að fletta bókinni okkar Visitors Guide á vefsíðunni. Þar eru upplýsingar um fjölda veitingastaða, opnunartími sundlauga borgarinnar, kort, menning og margt margt fleira gagnlegt. Um að gera að verða sér líka úti um eintak af bókinni.
Með bestu kveðju frá veitingastadir.is
Áframsenda póstinn
© 1998-2011 | NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | Kt. 611299 4789 | sími: 511 2707 |
| fax: 511 2708 | netid@netid.is |
|