Kæri viðtakandi

Vinningshafar
Við drógum 2 vinningshafa af póstlista. Þau heppnu hljóta annars vegar 20.000 króna gjafabréf hjá ZO-ON sem gildir hvort sem er á lagersölunni (sjá upplýsingar neðar í fréttabréfinu) eða í versluninni í Kringlunni., Hinn vinningshafinn hlýtur 5.000 króna gjafabréf á veitingastaðnum Gullfoss. Athugaðu hvort það varst þú sem varst heppin(n) með því að fara á forsíðu veitingastadir.is!

Könnun
Í síðustu könnun spurðum við hvað fólki fyndist gagnlegast á vefsíðunni og það kom skemmtilega á óvart að uppskriftir fengu flest atkvæði.
Við ætlum því að leggja enn meiri áherslu á þær. Það er gaman að sjá að fólk er almennt ánægt með upplýsingarnar á síðunni og við vinnum nú í að gera þetta enn betur. Hér má sjá niðurstöður þeirrar könnunar. Í nýrri könnun á vef spyrjum við hvað þér finnst um þetta fréttabréf, taktu endilega þátt!

Uppskriftir
Þessa dagana er verið að vinna í því að flokka, setja inn nýjar uppskriftir og gera viðmótið þægilegra fyrir notendur til að finna uppskriftir sem henta hverju sinni.

Uppskrift mánaðarins:


Kokkurinn á Lækjarbrekku mælti með Lamba Carpaccio með grófkorna sinneps dressingu.

1 stk Lambafillet er fituhreinsað, því er svo velt upp úr marineringu. Kjötinu er svo pakkað þétt inn í plastfilmu og fryst. Þegar kjötið er freðið er það skorið í örþunnar sneiðar og þær lagðar á disk sem búið er að strá yfir maldon salti og rifnum parmesan osti. Sinneps dressingu er dreift ofan á kjötið og að lokum er klettasalat sett ofan á kjötið.

Marinering:
1 búnt ferskt Basil
1 búnt fersk Steinselja
3 hvítlauksgeirar
Svartur pipar

Maukað í matvinnsluvél eða með töfrasprota.

Grófkorna sinneps dressing:
100 grömm Dijon Sinnep
100 grömm grófkorna Sinnep
100 grömm Ólífuolía
Dass balsamic edik
Hálf lúka sesam fræ

Maukað í matvinnsluvél eða með töfrasprota

ZO-ON ICELAND
Útivistarmerkið www.zoon.is er með heildsölu lagersölu dagana 2.-5. apríl að Nýbílavegi 18 (Dalbrekku megin). Okkur langaði hérna hjá veitingastadir.is að benda ykkur á þessa frábæru útsölu sem byrjar á fimmtudag kl. 14. Mikið úrval af: skíðafatnaði, útivistarfatnaði, soft shell peysum, golffatnaði, barnagöllum, barnaúlpum og mörgu fl. 40-80% afsláttur.




Upplýsingar á forsíðu og tilboð þar
Við vekjum athygli á fréttum á forsíðu veitingastadir.is. Þær eru að öllu jöfnu frá veitingastöðum sem eru með stærri skráningar hjá okkur á síðunni. Þar er oft minnt á tilboð frá viðkomandi eða einhverjar fréttir birtar. Nú eru til dæmis upplýsingar frá Perlunni, leikhústilboð frá Argentínu, hótel Rangá og sagt frá nýjum aðila á vefsíðunni sem er veitingastaðurinn Humarskipið sem er um borð í skipi í Reykjavíkurhöfn.

Við Fjöruborðið á Stokkseyri
Við hjá veitingastadir.is fórum á dögunum í vettvangsferð á veitingastaðinn Fjöruborðið á Stokkseyri. Staðurinn er í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og er það því þægilegur skottúr. Af matseðlinum völdum við annars vegar þriggja rétta humarveislu sem innihélt humarsúpu, 300 grömm af humar ásamt meðlæti og súkkulaðiköku í eftirrétt, og hins vegar 300 gramma humarveislu ásamt meðlæti – sjá nánar hér.




Google
Gerð var könnun á dögunum á leitarvélinni Google. Slegin voru inn nokkur leitarorð sem tengdust veitingastöðum. Þegar viss leitarorð voru slegin inn þá komum við mjög ofarlega á lista, eða yfirleitt í eitt af fyrstu fimm sætunum. Til að mynda komum við stundum fyrst upp þegar nafn ákveðinna veitingastaða eru slegin inn, jafnvel á undan þeirri eigin síðu. Þá koma álit sem fólk hefur gefið stöðum oft upp sem eitt það fyrsta um viðkomandi stað. Okkur langaði að deila þessu með þér til að sýna ykkur hið mikla notagildi vefsíðunnar. Heldurðu að þú getir fundið leitorðin sem við notuðum?

Með bestu kveðju frá veitingastadir.is

  © 1998-2009  |   NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf   |   sími: 511 2707   |   fax: 511 2708   |    netid@netid.is