Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.
Argentína hefur skapað sér sess fyrir safaríkar kolagrillaðar lamba- og nautasteikur, ásamt grilluðum fiskréttum.
Argentína steikhús býður þig innilega velkominn í hlýleg húsakynni okkar að Barónsstíg 11 A í hjarta Reykjavíkur. Það er einlæg ósk okkar að þú njótir þeirra fjölbreyttu veitinga sem við höfum á boðstólum. Argentínumenn hafa langa hefð í glóðarsteikingu enda er hvergi í veröldinni glóðað af meiri elju en einmitt þar. Allir kjöt- og fiskréttir Argentínu steikhúss eru glóðasteikir yfir viðarkolum á argentínska vísu og af því er nafn steikhússins dregið. Metnaður er lagður í að nota aðeins besta fáanlega hráefnið og einstök matreiðslan nær fram ilmi viðarkolanna í hvern munnbita. Stór og glæsileg koníaksstofa er á staðnum. Á Argentínu er hægt að fá eitt mesta úrval landsins af handvöfðum vindlum frá Davidoff og Kúbu. Á Argentínu steikhúsi leggjum við höfuðþungann á að veita persónulega og þægilega þjónustu. Við hlökkum til að þjóna þér til borðs og bjóða þér að njóta þeirra veitinga sem hafa borið hróður okkar svo víða. Opið Sunnudaga – fimmtudaga 18:00 – 24:00 Föstudaga og sunnudaga 17:30 - 01:00 Eldhúsið lokar 1 ½ tíma fyrir lokun