Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.
Perlan hvílir á 6 hitaveitugeymum og tengir þá saman. Á 5. hæð er veitingahús Perlunnar. Þar starfa margverðlaunaðir matreiðslumeistarar, enda hefur það verið nefnt eitt af fimm bestu útsýnisveitingahúsum í heimi.
Veitingasalurinn er með snúningsgólfi sem gefur gestum frábært útsýni á meðan þeir njóta þess besta í mat og drykk. Einnig eru í Perlunni kaffihús, minjagripa- og sælkeraverslun, útsýnispallur og glæsilegt sögusafn, sem er staðsett inni í einum tanki Perlunnar. Þar gefur að líta sögufrægar persónur og viðburði úr Íslendingasögunum. Smelltu hér til að sjá myndband frá veitingastaðnum.