Berit ,
10.6.2009 12:31

Borðaði með manninum mínum laugardaginn síðasta á Hátíð hafsins fengum okkur 4 rétta seðil í tilefni dagsins. Fannst okkur hann alveg frábær góð þjónusta og góður matur komum fljótt aftur.
Katrín Jónsdóttir,
23.2.2009 12:15

Takk fyrir mig á föstudag, við hjónin áttum yndislegt kvöld á Fjallarkettinum. Maturinn frábær, skemmtilega framborin, öll umgjörn góð. Þjónustan til fyrirmyndar.
Einkunn: 10
Takk fyrir mig!
20.2.2009 10:28

Ég og konan fórum í rómantískan dinner. Maturinn frábær þjónustan góð. Hafði aldrei komið þanngað áður en mun leggja leið mína þanngað aftur.
Sævar og Ásta ,
6.2.2009 10:49

Ákvað að fara út að borða með kærustunni og fengum við nettan valkvíða hvaða stað við ættum að velja. Vinur minn mældi með Fjalakettinum og sagði mér að panta einhverskonar dádýra carbaggio (held að það sé skrifað svona) og síðan skötusel í aðalrétt. Við slóum til og pöntuðum bæði það sem félagi minn mældi með takk Tryggvi minn því við bæði sátum og grétum yfir diskunum ekki af sorg heldur gleði ;D Þetta var algjör snild en það sem kórónaði kvöldið var eftirrétturinn einhverskonar heimalagað súkkulaði borið fram í litlum skálum. Ég ætla aftur þanngað við fyrsta tækifæri :)
Lovísa Alfreðsdóttir ,
30.1.2009 10:52

Fór úr vinnunni og prófaði hlaðborðið í háteiginu. Leit mjög skemmtilega út og bragðaðist mjög vel og mjög ódýrt svona í kreppunni :) rétt undir 1500 krónum 1470 ef ég man rétt.
Mæli með þessum.
Ágúst Ólafsson,
13.12.2008 19:41

Góða reynslu af þeim stað, ekki síst fyrir hádegishlaðborðið, góður staður til að taka hádegisverð og fund.
Ástrós G. Davíðsdóttir ,
5.12.2008 8:48

Við fórum fjöldskyldan í jólahlaðborð síðustu helgi 29/11 Ég verð að segja að ég átti ekki von á þessu. Maturinn var frábær þjónustan frábær. Síðan eftir matinn fórum við á barinn og fengum okkur kaffi og koníak og þá var einhver píanóleikari að spila skemmtileg lög og allir voru að syngja með. Þetta var alveg ótrúleg upplifun.
Gunnar B,
27.11.2008 22:27

Æðislegur staður! Hef farið þangað fjórum sinnum - alltaf prófað mismunandi rétti og allir hafa þeir verið dýrlegir. Kannski ekki í ódýrar kantinum, en maður sér svo sannarlega ekki eftir peningunum. Tilvalið á bjóða dömunni þangað á laugardagskvöldi. Flottur seðill.
Erlendur,
27.11.2008 15:30

Notalegur staður með góðri þjónustu og geðveiku lambi. kem aftur þangað!!
Gunnhildur,
7.11.2008 11:30

Veitingastaðurinn kósý með notalegri dinner tónlist, forréttir og aðalréttir einstaklega fallega fram bornir og bragðaðist allt mjög vel. Hótelbarinn með rólegu yfirbragði og góð þjónusta.
Brynjar,
7.11.2008 11:21

Einstaklega góður matur, skemmtilega borinn fram, sérstakur og skemmtilegur borðbúnaður og góð þjónusta.
Auður Sigurðardóttir,
3.11.2008 21:57

Mjög notalegur staður. Fór út að borða með manninum mínum um helgina og vorum við mjög ánægð með kvöldið. Við fengum okkur bæði humar í forrétt sem var vel heppnaður, ég fékk mér síðan ljúffenga nautasteik og hann fékk sér hreindýr. Ekki spillti nú eftirrétturinn fyrir, við fengum okkur eftirrétt sem kallast "Súkkulaði á sex vegu" og vorum við sammála um að þetta væri einn af bestu eftirréttum sem við hefðum smakkað. Þjónninn sagði okkur að þetta væri nýr matseðill og ætlum við pottþétt að fara aftur á Fjalaköttinn og prófa eitthvað fleira við tækifæri.
Jón Benediktsson,
3.11.2008 21:35

Við hjónin höfum nokkrum sinnum borðað hérna og erum alltaf mjög ánægð. Þjónustan er góð. Nú síðast pantaði ég lúðuna sem var öldungis frábær og konan fór í silunginn og þóttii hann mjög góður og vel framborinn. Maturinn alltaf verið góður sem við höfum fengi'ð. Mæli mjög með staðnum
Rúnar Árna,
3.11.2008 21:20

Fór með vinum mínum þangað og fékk mér skógar dúfu og hreindýr það var Virkilega góður matur og ég get mælt með honum!!
Gulli,
28.10.2008 22:47

Notalegur staður með dónalegum þjóni og ekkert sérstaklega góðum fisk. kem líklega ekki aftur nema þá ég sé í fylgd með öðrum sem bjóða
Sigríður Þórarinsdóttir,
5.7.2008 2:15

Ekkert út á þjónustuna að setja. Bý erlendis og hlakkaði til að fara út að borða á Íslandi og fá góðan fiskrétt. Pantaði rauðsprettu og það vantaði ekki magnið; heill fiskur. Því miður var hann vatnsósa, bragðlaus og svampkenndur. Hreint og beint óætur. Við vorum þrjár sem pöntuðum sama réttinn og fleiri smökkuðu og allir sammála um að þetta líktist alls ekki sæmilega matreiddri rauðsprettu. Þar með létum við vita þegar þjónninn spurði hvernig smakkaðist. Hann lét kvörtunina sem vind um eyru þjóta. Mun aldrei nokkurn tíma borða á þessum stað aftur.
Guðmundur J.
28.3.2007 7:46

Hef borðað þar í hádeginu, góð húsakynni og þægileg þjónusta. Matur ágætur.
Til baka
www.Veitingastadir.is áskilur sér rétt til að fjarlægja álit sem ekki þykja við hæfi og innihalda nafnleysi, dónalegt orðbragð o.s.frv.