Sverrir Þór,
26.12.2010 13:44

Terrible
Arnbjörg Heiðudóttir,
25.7.2010 19:03

Við fórum hjónin saman í hádeginu um daginn á staðinn sem er í skeifunni/faxafeni.
Ég átti í mestum erfiðleikum með að borða matinn þar sem hann var bara drulla af vökvanum úr salsamixinu fyrir utan það að eitthvað var greinilega ekki ferst því bragðið var beiskt og vont, þjónustan var hræðileg og þurfti ég að rífast við yfirmanninn á staðnum til að fá peninginn minn til baka. þennan stað mun ég ekki heimsækja aftur.
Kristín,
23.9.2008 21:50

Langbesti bitinn í bænum. Greinilega lagt mikið í eldun og hráefni. I love it!
26.5.2008 20:39

Maturinn sem við fengum var viðbjóður og við skiluðum honum eftir nokkra bita. Eitthvað af hráefninu virtist vera skemmt. Þurftum svo að hringja í sérstakt númer til að fá endurgreitt og það tók meira en 3 daga að fá peninginn endurgreiddan á reikninginn okkar. Fer ALDREI aftur, þetta var afmælisdagurinn minn og við ætluðum að prófa þennan nýja og spennandi stað, endaði með því að við misstum bæði lystina þetta kvöldið. Þjónustan var ekki skemmtileg.
Eyrún,
13.5.2008 0:33

Hef aldrei lent í jafn ömurlegri þjónustu held ég. Og svo var þetta ískalt.
:),
8.5.2008 18:17

Best skyndibitastaðurinn á Íslandi. Ferskur og góður matur.
23.2.2008 17:19

Góður matur en ömurlegasta þjónusta á Íslandi. Hef farið þarna vikulega í langan tíma vegna þess hve matuinn er góður, hann er samt í dýrari kantinum miðað við svipaða staði og starfsfólkið er alveg gjörsamlega úti að aka. Er loksins hætt að fara þangað núna, þó að maturinn sé fínn. Þjónustan skiptir náttúrulega líka máli, en þarna er þetta eins og þjónusta frá helvíti ;)
Til baka
www.Veitingastadir.is áskilur sér rétt til að fjarlægja álit sem ekki þykja við hæfi og innihalda nafnleysi, dónalegt orðbragð o.s.frv.