perlan-allt_i-steik-2012-is
Sumarogsol_jan2012_tveirfyrireinn_825x150
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Álit

Arnar, 12.7.2010 18:08
Þegar maður vill láta uppfylla allar sínar kröfur, þá fer maður á Strikið. Ég ákvað að verða við ósk konu minnar um að bjóða henni í hádegismat. Ég gæti hugsamlega étið þjónana á Strikinu, þeir eru svo frábærir og elskulegir. Maturinn frábær og veðrið hefur batnað, sakna reyndar sólarinnar. Hefði helst viljað borða úti. Gaf konunni loforð um að bjóða henni út á Strikið í næstu hitabylgju.
Elsa Pálmadóttir, 10.6.2010 12:49
Við stóra fjölskyldan borðuðum á Strikinu rétt fyrir jólin og vorum við öll hæðst ánægð með allt,mæli með Strikinu.
Sigurveig , 20.4.2010 9:38
ÞVÍLÍK VONBRIGÐI!!! Við völdum staðinn vegna álitsgjafar hér á síðunni sem stendur engan veginn undir sér - maturinn kom annað hvort kaldur eða bragðlaus ef ekki hvoru tveggja og gjörsamlega eyðilagði sérstakt kvöld hjá okkur. EN þjónustan er fagmannleg, lágstemmd og elskuleg og það heldur þessum staði uppi og því verð ég að gefa þeim tvær stjörnur - OG það eingöngu fyrir þjónustuna.
Dabbi Guð, 12.9.2009 15:32
Við fórum þarna nú rétt um daginn og fengum dýrindis kokteila og mat og ekki var þjónustan að verri kantium fagrar stúlkur svifu um staðinn og komu þegar að hugsað var til þeirra. Þarna á maður að fara til þess að fagna og sérstaklega þegar að stefnt er að löngu kvöldi.
Binna Babe, 20.6.2009 16:26
Sat á svölunum í allan dag. Bað um að fá að tjalda á svölunum en fékk neitun. Ætla að kaupa staðinn og búa á svölunum í 30 stiga hiti.
Brynja, 16.4.2009 10:59
Topp klassi. Notarlegt umhverfi og góður matur ;)
Erla Einarsdóttir, 30.12.2008 22:41
Þessi staður stendur öðrum stöðum framar á Akureyri. Fyrirmyndar þjónusta, góður matur og einstakt útsýni. Fékk Nautasteik madeira og verð að viðurkenna að aldrei hef ég fengið eins gott naut og súkkulaðikakan sem ég fékk í eftirrétt,,,,VÁ. Svona staðir eru svo frábærir, léttleikandi þjónusta og verð á mat mjög sanngjart miðað við gæði. Vonandi er kokkurinn á lausu.
Rannveig Eva Karlsdóttir, 26.11.2008 22:47
Yndislegur staður, frábær matur og þjónusta til fyrirmyndar. Getur ekki klikkað.
María Ósk Sigurðardóttir, 7.7.2008 14:25
Að borða úti í góðu veðri er einfaldlega geggjað og ótrúlegt, útibar og eldstæði. Hélt bara að ég væri á Spáni. Mun mæla með þesstum stað við alla, pottþétt í hópi bestu staða á landinu.
Ásta, 12.6.2008 17:22
Himneskur veitingastaður með frábæru útsýni, svo er bara svo mikð líf á þessum stað. Eigendurnir ættu reyndar að breyta nafninu í Himnaríki, það á svo miklu betur við allt. Mm mmm góður matur.
Birgir Guðmundsson, 31.5.2008 23:47
Ætla bara að gefa þessum stað fullt hús og mæla með honum við alla. Það var reyndar brjálað að gera og gjörsamlega troðið af fólki. Fólk var úti að borða á svölunum, á barnum og ég þorði bara ekki að skoða hvort einhver væri að borða á klósettinu. Þrátt fyrir þetta var mjög góð þjónusta og maturinn mjög góður. Skil vel að það sé brjálað að gera á þessum stað, greinilega hugsað fyrir öllu.
Anna og Gísli, 18.5.2008 13:37
Þetta er lang, lang flottasti staðurinn. Frábær matur, lifandi og skemmtileg þjónusta. Útsýnið geðveikt og svalirnar risa stórar.
Eggert, 9.5.2008 22:07
Verð að segja frá þessum stað. Ég bauð konunni út að borða og valdi Strikið þar sem vinur minn hafði mælt með honum. Ég hef fá önnur orð um þennan stað en þessi,,,, þessi staður er eitthvað það besta sem Ísland hefur alið af sér. Við erum að tala um stað sem er á sjöttu hæð með svakalegu útsýni og takið eftir, þú getur fengið allt frá ekta ítalskri flatböku uppí nautasteik. Frábært andrúmsloft og geggjaður matur.
Sigrún, 9.5.2008 15:49
Ofsalega góður matur. Verðið er einnig hóflegt. Mæli með þessum stað.
8.5.2008 17:24
var þar síðasta laugardagskvöld. Mjög góður matur og frábær þjónusta.Hulda Einars
Hjálmar, 8.5.2008 16:36
Snilldastaður í miðbæ Akureyrar. Fór þarna í frábæru veðri í hádegi og sat úti á svölum. Útsýnið er magnað. Fékk mér hádegistilboð sem samanstóð af Graskerssúpu og Indverskum pottrétti. Greiddi fyrir þetta 1.200 kr. Ekki annað hægt en að gefa þessum stað fullt hús stiga, maturinn frábær, sérstaklega miðað við verðið. Hef einnieg farið þarna í nautasteik og hún er sú besta sem ég hef smakkað. Verðið á henni var hóflegt.
Lilja H, 1.5.2008 16:32
Frábært útsýni, hipp og cool staður. Frábær þjónusta og góður matur. Fengum okkur nautasteik og rauðvín, borguðum ekki mikið fyrir gæði. En, ó mæ god, svalirnar sem eru með skjólveggjum og útsýni til allra átta. Hefði ekki trúað þessu þegar ég var að fara upp með lyftunni. Mæli með þessum stað fyrir þá sem vilja eiga frábærann dag.
Hákon Þór 27.9.2006 9:24
Borðaði þar í ágúst í sumar, frábært útsýni og huggulegur staður. Mjög góðir aðalréttir, 2 fiskréttir sem við fengum okkur m.a. silungur.

Til baka  

Staður:
Álit: 

 

Nafn:
Stjörnur: Ein stjarna
Tvær stjörnur
Þrjár stjörnur
Fjórar stjörnur
Fimm stjörnur
Vinsamlega sláðu inn texta:
Endurnýja texta

www.Veitingastadir.is áskilur sér rétt til að fjarlægja álit sem ekki þykja við hæfi og innihalda nafnleysi, dónalegt orðbragð o.s.frv.

Booking - Visit Visitors Guide 150 SOS banner