Hans,
15.8.2011 16:37

Við fórum á Metro á leið inn til Reykjavíkur.
Ég pantaði þann borgara sem hafði stæðstann "kjöt" bita og var hann auglýstur sem með "grill" bragði.
Það var EKKI grill bragð af borgaranum og ekki heldur kjötbragð.
Sósan var slepjuleg og bragðlaus, Grænmetið var lint. Brauðið var þurrt og gersamlega bragðlaust. Og borgarinn sjálfur var eins og pappír kryddaður með of miklum svörtum pipar.
Franskarnar voru bragðlausar og jafnvel gosið var lélegt. Það var hálf flatt og það var vatnsbragð af kókinu.
Ég varð að fá mér ís í eftirrétt til að ná óbragðinu úr kjaftinum, en hann var allavega ætur.
Mæli ekki með því að fara þangað aftur. Ef þig langar í ódýrann skindibita, farðu frekar í næstu sjoppu og keyptu þér eina með öllu.
luisvuitton,
24.5.2011 22:38

ég kýs frekar mcdonalds. metró er vibbi
Ragnar,
7.12.2010 17:15

Ekki góður matur.
Hákon Þór - Veitingastadir.is,
6.12.2010 7:39

Fórum á Metro til að prófa staðinn, keyptum af klink tilboði; ostborgara, 4 litla kjúklingavængi, kjúklingaborgara, og crispy franskar. Einnig barnabox og máltíð (kr 1190) sem var stór hamborgari, franskar og gos. Verð fyrir allt kr. 3490, sem dugði fyrir fjóra og verð því gott. Allt sem var á klink tilboði var í lagi, nema crispy franskar alltof feitar. Verð var gott sem og á barnaboxi og góður kíkir fylgdi þar með. Undirritaður borðaði þó alveg yfir sig sem gerist sjaldan af svona mat. Eftiráhrfin voru alls ekki góð hjá mér, fann einhverja slæma fitutilfinningu og uppþembu. Þjónusta stúlkunnar sem afgreiddi okkur þarna í Kópavogi var glaðleg og góð. Niðurstaða ágætur staður ef valið af hagstæðu klinktilboði og maður passar sig á transfitu og slíku. Rétt ná 3 stjörnum.
Ásgeir,
26.8.2010 13:40

Hvað hefur skeð á Metró, staðirnir ekki lengur hreinir, WC ekki lengur tandurhrein, kjötið eins og gúmmíklattar. Það er greinilegt að einhver sem tók hlutina alvarlega er farinn. Ný kennitala, meira kæruleysi.
10.1.2009 14:18

Snilldar burgerar fyrir klink
Jón G,
2.1.2009 23:00

Dýrt fóður sem bragðast eins og pappír með súrri gúrku og tómatsósu.
Eva Katrín,
28.4.2008 10:18

get nu ekki sagt að þetta sé hollur matur, en án efa mjög góður. Matur sem klikkar aldrei
Katrín,
29.1.2008 15:26

Ef þú villt eitthvað hollt og gott, - þá ferðu þangað !!
takkfyrir góð ár Mcfamilie
Til baka
www.Veitingastadir.is áskilur sér rétt til að fjarlægja álit sem ekki þykja við hæfi og innihalda nafnleysi, dónalegt orðbragð o.s.frv.