Perlan 3
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Álit

20.5.2010 14:41
Fór með viðskiptavin út að borða á Lækjabrekku. Vð fengum mat sem var frá því að vera La La niðu í það að ver afleitur. Þjónustan var þokkaleg. Er ekki vanur því að þurfa að biðja gest minn afsökunar vegna mats á veitingahúsum hér heima. Ekki aftur.
Hulda Björk Þórisdóttir, 19.3.2009 21:38
Ég mætti spennt í síðkjól og tilbúin að vera vel trítuð og fá góðan mat á valentínusardag. Í stuttu máli sagt.forrétturinn : Humarsúpan var bragðlaus og froðukennd, Aðalrétturinn ;lambakjötið var algjörlega bragðlaust , ókryddað held ég og mjög ógirnilegt. Hef aldrei smakkað svona bleikt ógeðslegt kjöt. Grænmetið sem fylgdi með aðalréttinum var allt í lagi en ekki nóg til að ég fengi matarlystina aftur. Ég reyndi að kvarta þegar þjónninn sótti diskana en var eiginlega hundsuð. og Eftirrétturinn var ekki einu sinni minnisstæður en ætur. Fruss og svei og ég sé eftir peningunum mínum.
Jón Guðmundsson, 30.12.2008 1:43
Eitt orð: Túristagildra.

Veitingastaður getur ekki lifað lengi á fornri frægð.

Dýr túristamatur.
Rósa, 1.9.2008 23:46
Djöfulli var þetta ömurlegt. Og engin loftræsting í kæfandi hitanum og við borguðum allt allt allt of mikið! Og kommon. Borðskreytingar frá 1995 eru ekki lengur kúl.
Maturinn var líka bara vondur. Kartaflan mín var þur og hálf brunnin og lélegt úrval fyrir grænmetisætur. Fer ALDREI! þarna aftur
Einar Guðmundsson, 29.7.2008 20:17
Fer oft að borða á Lækjarbrekku og verð að segja það að mér finnst það alltaf frábært, þjónustan er svo persónuleg og maturinn góður. Mér finnst reyndar slæmt að lesa einhvern HH rakka þennan uppáhalds stað minn niður. Ég myndi vilja sjá menn skrifa svona undir fullu nafni. Ekki skrifa svona ósanngjarna umfjöllun og svo bara HH. Ég borða þarna mjög oft og þannig dómbærari á þennan stað og læt mitt nafn fylgja.
HH, 25.7.2008 14:02
Ævintýri byrja oft á “einu sinni var...”. Einhver hluti ævintýrsins “einu sinni var veitingahús sem hét Lækjarbrekka” hefur endað og erfitt að átta sig á hvað lifir eftir. Matreiðslumenn virðast allavega hafa snúið baki við þessum skáldskap því enginn lærður kokkur myndi voga sér að senda fram það sem borið var á borð fyrir okkur kvöldið sem við kíktum á Lækjarbrekku. Ekki er óþægilegt að ganga inn á staðinn, dálítið gamaldags en afslappað andrúm og svolítið ömmulegt. Og móttökur hlýlegar. Matseðillinn sem var lesinn á efri hæðinni þar sem er smá afdrep, leit vel út. Þó er áberandi hve mjög allt virðist gírað inná túrista. Og verðlagningin eftir því. Allstaðar eru styttur og myndir frá fyrri tíð, allt í takt nema Marylin Monroe-lampinn sem var eins og álfur út úr hól. Forréttir eru ýmiskonar og úrval af fjórum þótti freistandi. Þar til þeir voru smakkaðir. Ef þetta átti að vera einhver lókal brandari þá fullvissa ég aðstandendur veitingahússins um að mér þótti hann ekki fyndinn. Þetta var svosem ekki ólaglegt á að líta en það var alveg sama hvað maður setti upp í sig, það var sama ullarbragðið af öllu, nema humarsúpunni, sem borin var fram í litlu staupi, hún slapp fyrir horn. Restin, og þar með talin staka risarækjan stóðst ekki væntingar og greinilegt að frystirinn er besti vinur kokkanna á Lækjarbrekku. Aðalrétturinn var framundan og ekki ástæða til að örvænta svo snemma kvölds. En drottinn minn dýri, hvað fer eiginlega fram í eldhúsinu? Þegar beðið er um medium rare nautasteik, er ekki sanngjarnt að lufsan sem felur sig undir piparþrennunni sé svo grásteikt að gangstéttarhella lítur betur út. Og hvað var þetta með eina; “eina”, forsoðna kartöflu sem dansaði sóló við hliðina á ekki fersku, teningsskornu, beint úr frosti, grænmetinu sem var að leika meðlæti? Og svo átti að gera gott úr öllu saman með því að segjast ætla að skamma kokkinn. Ekki beint það sem verið var að kaupa. Lambakjöt og humar saman í kór, er kallað “Fjall og flói”, rammíslenskt nafn, og lambakjötið var sannarlega “rammíslenskt”. En ekki veit ég hvar og hvenær þeir létu lífið, humrarnir tveir sem fylgdu með, þeir voru í það minnsta ekki ferskir.
Eftir þessar hörmungar langaði okkur að yfirgefa staðinn en kurteis þjónn bauð okkur að setjast upp og þiggja eftirrétt í boði hússins. Og loksins tóks að gera eitthvað vel. Ís með kanil og volgar plómur var góð samsetning og hindberja og Tonka pot-de-créme (??) með vanillukexi var sömuleiðis gott. Réttirnir sem í boði eru á matseðlinum heita flottum nöfnum þar sem slegið er um sig á útlensku. Á ágætri heimasíðu veitingahússins má sjá myndir af sumum þessara rétta, en hafa ber í huga, að þú færð ekki endilega það sem sést á myndinni. Maturinn þetta kvöld var ekki boðlegur og engan vegin í samræmi við verðið sem er vel í hærri kantinum. Þjónarnir voru allir af vilja gerðir og vel meinandi en það dugar ekki til ef eldhúsið er komið framyfir síðasta söludag. Kannski ef þjónarnir væru klæddir upp í þjóðbúninga, peysuföt og sauðskinnskó, myndi þessi túrista fílingur skila sér betur og þá væri hægt að keyra ævintýrið eitthvað áfram. Stjörnugjöfin miðast við að ekkert veitingahús fá enga stjörnu. Lækjarbrekka fær eina stjörnu fyrir leikmynd og leikmuni og fyrir grafna lambið sem ég smakkaði á jólahlaðborðinu í fyrra.
Einar, 11.7.2008 20:40
Eitthvað aðeins að dala, finn ekki lengur fyrir þessu góða andrúmslofti sem einu sinni var. Þjónustan ekki eins persónuleg og hún var.
27.5.2008 23:01
Hef aðeins farið einu sinni á Lækjarbrekku.
Þjónustan var mjög góð.
Andrúmsloftið var mjög gott.
Maturinn var mjög góður.

En það sem dregur aðeins úr stjörnugjöfinni er að ég pantaði piparsteik og það var enginn pipar á henni. Bakaða kartaflan var eins og svona forsoðin pakkakartafla án híðis og var hún frekar lítil og ómerkileg.

Þannig að maturinn var mjög góður þrátt fyrir að vera kannski ekki eins og hann átti að vera. En ég hef aðeins farið einu sinni þangað og get því ekki dæmt staðinn af einu skipti
Jóhanna F Pálsdóttir, 8.5.2008 21:18
Frábær þjónusta og góður matur
Kári Rafn Sigurjónsson , 8.5.2008 17:56
Mjög góður staður. Mjög
góður matur og þægilegt
að vera með börn.Gef honum bestu meðmæli.
8.5.2008 17:25
Vorum þar 19 mars.frábær þjónusta og dásamlegur matur hulda einars
Sigurveig Friðgeirsdóttir 25.10.2006 13:07
Hef fari nokkuð oft á Lækjarbrekku, alltaf jafn ánægð, góður matur, góð þjónusta og umfram allt andrúmsloftið gott í þessu gamla sjarmerandi húsi.
25.10.2006 12:50
Iðulega góður matur og vel útilátinn. Topp þjónusta þar sem gesturinn er ávallt í fyrirrúmi!
2.9.2006 10:32
Mjög góður staður hef farið þarna 4 sinnum, gef honum alveg bestu einkunn sem hægt er að fá og mæli alveg eindreigið með honum
3.8.2006 18:52
Með betri stöðunum í Reykjavík, allaveganna til að mæla með fyrir útlendinga sem vilja íslenska matargerð

Til baka  

Staður:
Álit: 

 

Nafn:
Stjörnur: Ein stjarna
Tvær stjörnur
Þrjár stjörnur
Fjórar stjörnur
Fimm stjörnur

Booking - Visit Visitors Guide 150