perlan-allt_i-steik-2012-is
Sumarogsol_jan2012_tveirfyrireinn_825x150
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Álit

Bjarni B., 6.8.2011 21:44
Það er sama hvað ég reyni, ég fæ bara hvergi betri mat. Er samt að festast leiðinlega mikið í TEN TEN THREE og ætla að reyna að gleyma honum næst.

Flottur staður, flott eldhús og algjörlega mergjaður matur.
Guðrún Geirs, 7.8.2010 14:31
Skil ekki, veit ekki, mun ekki skilja og vil ekki vita. Á þetta virkilega að vera veitingastaður eða er þetta bara grín á minn kostnað. Pantaði borð á vitlausum stað og var send þangað, ENGINN vissi neitt eða skildi. Hvernig væri að breyta nafninu í RÁÐGÁTA.
Arnar, 12.7.2010 2:25
Stundum skipuleggur maður með góðum fyrirvara hvar maður ætlar að borða. Svo hugsar maður um það í nokkra daga með smá tilhlökkun og þegar dagurinn kemur fer maður í sparifötin. Það heillar alltaf konuna mína þegar ég býð henni út. Síðasta laugardagskvöld átti ég von á góðu kvöldi en það var eyðilagt fyrir mér. Móttökurnar á staðnum voru arfa slakar og enginn gat útsýrt flókinn matseðil fyrir okkur þó það væri nánast ekki neitt að gera á staðnum. Kvöldið varð bara mjög ónotarlegt í alla staði og á endanum fórum við út mjög pirruð og verulega ósátt við matinn. Eina sem bjargaði kvöldinu var að við fórum út af þessum stað sem einu sinni var stolt bæjarins með Fredda kokk í framlínunni.
Jónína S., 7.7.2010 16:38
er dyggur gestur á sushi stöðum hvar sem er í heiminum, en Rub er ábyggilega sá skrýtnasti og mest í meðalagi góður, fór þar fyrir 2mánuðum.
Túnfiskurinn sem er mitt nammi, var fjólublár lagði ekki í hann þegar hann kom, og þjónustustúlkan þráttaði við mig að hann ætti að vera svona, hefur greinilega aldrei séð ferskan túnfisk. og hef aldrei skilið þessa þráhyggju hjá Akureyringum notkun á kokteilsósu, smakkaði samt sushi pizzuna og fleira sem er með kokteilsósum, aldre að segja aldrei, rétt?
en en þegar ég hugsa tilbaka um þegar ég lét þetta upp í mig, lætur mig fá nábít. en ef fjölbreytin verður aukin og þjónustufólkið verður meir menntaðara um hvað þau eru með, í bæði mat og vín, þá hlakka ég til að koma aftur, sem ég mun gera fljótlega, maður má alltaf vona að þið bætið ykkur, og miðað við þessu flottu álit sem eru komin þá hef ég engu að kvíða eða hvað?
gef þeim 3 stjörnur fyrir þetta skiptið.
Halli ( mjög sáttur neytandi á RUB23), 21.4.2010 14:45
Ég hélt að ég væri ekki fyrir Sushi, það snarbreyttist eftir að ég snæddi hjá þeim. Ég hef sjaldann borðað betri mat, hlakka HRIKALEGA eftir að steikhúsið þeirra opnar!! Sem verður núna á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta.

Sigurveig, 20.4.2010 9:24
Á sama tíma að ári - komum aftur ári síðar og héldum að ekkert gæti toppað upplifunina frá því í fyrra - það var heldur betur ekki rétt - Staðurinn bara vex og eiginlega ekki hægt að lýsa þeirri upplifun sem hver réttur er hjá þessum snillingum. Matur á heimsmælikvarða - vildi óska að hann væri hér fyrir sunnan.
John Ramsay, 4.3.2010 9:47
Bests piece of salmon and cod fillet that I have ever tasted in my life. Great service and cool atmosphere. Definately a must if you go to Akureiry
Friðfinnur R, 15.7.2009 2:55
Snilldar staður a Akureyri með opið eldhús sat a þannig stað að ég sá það sem kokkarnir voru að bralla (sem er ekki verra) fagmennskann i botni fallegur og hrikalega góður matur! einfallt og gott. ROCK SOLID reyndar fyrsta skifti sem eg borða þar.
Kristján, 6.7.2009 15:41
Þeir sem ekki hafa prófað ,,sushipizzuna" á Rub23 hafa bara ekki lifað!!! Bragðlaukarnir fóru á tripp!! Meiriháttar staður og fagmannleg þjónusta.
Sunna, 22.6.2009 11:15
Vá - ótrúlegur staður, gg matur, cool innréttingar, þjónustan fín og verðið bara fáránlegt miðað við hvað við borðuðm gott...kem örugglega aftur!
Kolbeinn og Sivva, 22.6.2009 10:56
Við hjónin skruppum í dekurferð til Akureyrar og ákváðum að prófa veitingahúsaflóruna þar. Rub23 stóð algjörlega uppúr sem ógleymanleg upplifun bæði í mat og þjónustu. Hefði ekki trúað því að óreyndu að hægt væri að koma manni svona gjörsamlega á óvart. Hugmyndaflugið við matargerðina, kryddblöndurnar, framsetningin á hverjum rétt, þjónustan og umhverfið er bara frábært og algjörlega ógleymanlegt og verðið í samræmi við það. Munum svo sannarlega koma aftur og aftur og.......
HH, 4.12.2008 22:54
Einfaldlega frábært Sushi! Fínasta þjónusta og umhverfið viðeigandi.

Óttast bara að andrýmið og víðsýnin sé ekki næg í Skurðinum (Eyjafirði) og Akureyringum og reyndar norðlendingum almennt beri ekki gæfa til að halda þessum stað gangandi.
Kalli, 16.10.2008 15:46
frábært sushi
Óli, 5.10.2008 12:52
Eki góður staður, inrétingar úr rúmfó og kaldur staður. Ekki nálægt því eins góður og Fiðrik kóngur sem er betur í ölum heimnum
Steingrímur, 28.9.2008 15:36
frábær staður, geðveik hönnun og flottur matseðill ég var þvílíkt hissa að rekast á svona stað á Akureyri og stemmingin var eins og ég væri kominn á cool stað í london eða new york, frábær matur og fín þjónusta. og þangað fer ég aftur næst þegar ég fer til AK.
25.9.2008 10:41
borðaði sushi kvöld eitt í júli og svei mér þá,ég held að ég hafi aldrei borðað eins góðan mat og þá.nú ég fór aftur í ágúst það var æðislegt og ekki var það síðra. sem sagt frábærasti veitingarstaður sem ég hef farið á. þjónustan var líka mjög góð.takk takk
8.9.2008 20:32
Frábær matur og þjónusta
Hákon Þ, 20.7.2008 20:47
Borðaði þar í hádeginu í júlí fisk 2 tegundir. Var ljómandi góður og góð notkun á kryddi.

Til baka  

Staður:
Álit: 

 

Nafn:
Stjörnur: Ein stjarna
Tvær stjörnur
Þrjár stjörnur
Fjórar stjörnur
Fimm stjörnur
Vinsamlega sláðu inn texta:
Endurnýja texta

www.Veitingastadir.is áskilur sér rétt til að fjarlægja álit sem ekki þykja við hæfi og innihalda nafnleysi, dónalegt orðbragð o.s.frv.

Booking - Visit Visitors Guide 150 SOS banner