IE,
11.12.2011 0:06

Frábær staður.
Gunnar Helgason,
24.4.2009 1:34

var að borða þarna í seinustu viku, alveg frábær matur og framurskarandi framsetning. Einnig var ég mjög sáttur við þjónustuna, þjónarnir vissu allt um matinn og gátu svarað ótrúlegustu spurningum. Mjög góð stemming og flottur staður en það eina sem ég gat sett útá var verðið sem var í hærri kantinum
Jón Guðmundsson,
6.1.2009 9:21

Góður matur en alltof dýr. Missir tvær stjörnur vegna verðlagningarinnar. Kvöldmatur f. tvo kostar amk 20.000 kr.
Margrét Leifsdóttir,
11.5.2008 11:40

Flottur staður og góð þjónusta. Maturinn alveg magnaður. Bæði góður, flottur og frumlegur. Algjör veisla fyrir bragðlaukana! Eina sem að ekki var gott var tónlistin. Technotónlist er ekki góð fyrir meltinguna!
HJ,
8.5.2008 8:36

Alveg hreint út sagt geðveikur staður. Ótrúlega góður matur, frábær þjónusta. Takk fyrir mig.
29.7.2007 19:56

Súper trúper! Þetta er staðurinn sem ég segi öllum sem ég þekki að fara á. Maturinn er hreint út sagt fáránlega góður og þau hafa sérstaka hæfileika í að gera matinn fallegan líka. Þjónustan hefur aldrei klikkað heldur og vínin góð. Það ætti að skylda alla Íslendinga að prófa réttinn humar "pick me up" sem er settur saman úr hráefni sem mér hefði aldrei dottið í hug að setja saman en er hrein snilld fyrir bragðlaukana.
Finnbogi
16.5.2007 9:46

Fór í hádeginu og fékk mér Steiktann saltfisk í aðalrétt og kengúru í forrétt. Til að gera langa sögu stutta þá var steikti saltfiskurinn alveg ótrúrlega góður, mæli eindreigið með honum. Kengúran var einnig mjög góð, þá sérstaklega salatið sem fylgdi. Mæli hiklaust með þessum stað.
Guðmundur
11.3.2007 18:29

Æðislegur staður! Hef farið þangað fjórum sinnum - alltaf prófað mismunandi rétti og allir hafa þeor verið dýrlegir. Kannski ekki í ódýrar kantinum, en maður sér svo sannarlega ekki eftir peningunum. Tilvalið á bjóða dömunni þangað á laugardagskvöldi. Frumlegur og flottur seðill.
8.3.2007 17:20

f
Einar F.
16.8.2006 14:07

Góða reynslu af þeim stað, ekki síst fyrir hádegismat, góður staður til að taka hádegisverð og fund, róandi umhverfi.)
Til baka
www.Veitingastadir.is áskilur sér rétt til að fjarlægja álit sem ekki þykja við hæfi og innihalda nafnleysi, dónalegt orðbragð o.s.frv.