21.12.2009 13:04

Æðislegur matur og á viðráðanlegu verði. Kósý staður í alla staði. Mæti hingað reglulega.
Eyjólfur,
15.11.2009 23:18

Ég hef borðað nokkrum sinnum á staðnum. Þjónustan er góð og hröð. Maturinn hefur alltaf verið góður og verði stillt í hóf. Hinsvegar getur hávaði í stærri hópum ollið talsverðum hávaða og truflað umræður og kósíheit.
Caruso-álit,
25.4.2009 15:21

Alveg hreint yndislegur matur þarna á Caruso, fór fyrir nokkru og ég panta pizzu og það var ekki smá flykki sem ég fékk!!
Frábær staður.
-Takk fyrir mig.
Unnur ,
19.2.2009 13:36

Frábær og notalegur staður, þjónustan góð, maturinn góður, mæli með þessum stað, búin að fara þangað nokkrum sinnum og þessi staður hefur aldrei klikkað.
Rósa,
18.2.2009 23:05

frábær þjónusta, góður matur
viðráðanlegt verð, hef farið nokkrum sinnum og alltaf farið sátt út
Jón G,
30.12.2008 1:50

Staður yfir meðallagi. Vín og bjór þó óhóflega dýr.
Bergur Guðmundsson,
24.9.2008 23:56

Geri mér ekki alveg grein fyrir því að þegar fólk er óánægt með mat og þjónustu á einhverjum stað, að það fari þangað þrisvar og í öll skiptin er tíminn mældur á því hversu lengi áhveðnir hlutir koma. Mér þykir því miður að einhver skrifi svona gangrýni á svona fína síðu og ég vorkenni fólki sem fer með vitlausu hugarfari út að borða og hvað þá því fólki sem er að líta á klukkuna sína og búa til meðaltal á það hversu lengi matseðillinn er á leiðinni.
Hef ekki mælt tímann á þessum stað enda aldrei borðað á honum og líklega geri ég það mjög fljótlega og skil klukkuna mína eftir heima.
Margrét Leifsdóttir,
11.5.2008 11:36

Oftast mjög góður matur og allir finna eitthvað við hæfi. Þjónustan er mjög góð og staðurinn notalegur.
10.5.2008 22:03

Æðislegur staður finnst mér svona passlega fínn til að geta farið á oft :) og mjög góður matur og hef alltaf fengið bara fína þjónusta :)
Birna Gunnarsdóttir,
9.5.2008 18:33

Frábær matur, t.d. sjávarréttalasange, góð þjónusta, öryggistilfinning sérstaklega vegna viðmóts starfsfólks, þægilegt andrúmsloft. Kósíheit.
jammí nammí
Ásdís Hjálmtýsdóttir,
8.5.2008 19:52

Frábær þjónusta, fljót afgreiðsla, skemmtilegt andrúmsloft, mjög mikið að gera en það bitnaði ekki á þjónustunni og síðast en ekki síst maturinn var æðislegur við vorum 4 og enginn með það sama og allir sammála um að þessi staður væri akkurat fyrir alla það er enginn sem finnur ekki eitthvað við hæfi. Caruso ég kem sko aftur við fyrsta tækifæri , því það hafa allir efni á að borða hjá ykkur. Takk fyrir okkur. Ásdís
Til baka
www.veitingastadir.is áskilur sér rétt til að fjarlægja álit sem ekki þykja við hæfi og innihalda nafnleysi, dónalegt orðbragð o.s.frv.