Humarskipið
Við fyrstu sýn lítur Humarskipið ekki út fyrir að vera sérlega fínn veitingastaður. En viðhorfið breytist fljótlega þegar brosmilt þjónustufólkið tekur á móti manni og beinir til borðs
í huggulegu og vinalegu umhverfi. Eins og nafnið gefur til kynna er veitingastaðurinn ekta skip sem búið er að byggja við og gera upp. Staðurinn er rúmgóður, sætin sérlega þægileg og gluggarnir veita útsýni í allar áttir. Það kunna kannski ekki allir að meta flögrandi máva yfir tómum fiskikörum á bryggjunni, en í staðinn er hægt að njóta útsýnis yfir smábátahöfnina, slippinn, flóann og Esjuna.
Þrír starfsmenn veitingastadir.is heimsóttu Humarskipið 16. júní til að prófa staðinn. Matseðillinn er mjög fjölbreyttur og inniheldur úrval humars, fisks og kjöts í aðalrétti, ásamt forréttum og
eftirréttum. Einnig er um hópmatseðla að ræða og barnamatseðil. Í forrétt pöntuðum við fiskisúpu, humarsúpu og smokkfisk. Forréttir voru ágætir en þó ekki framúrskarandi. Brauð og smjör fylgdi með súpunni og skammtarnir voru vel útilátnir. Í aðalrétt fengum við grillaðan humar, fiskifimmu og surf & turf humar og nautasteik. Af þessum réttum stóð humarinn upp úr. Hann var afar bragðgóður og bragðið hélst lengi eftir að bitinn kláraðist. Nautalundin var meðalgóð en vel útilátin. Ekki var lagt of mikið upp úr of mikilli skreytingu á réttunum. En í staðinn voru skammtar frekar stórir og meðlæti vel útilátið. Steiktur kúrbítur með réttunum kom t.d. skemmtilega á óvart. Í eftirrétt fengum við heita súkkulaðiköku ásamt heimalöguðum ís og Tiramisu köku. Eftirrétturinn var einstaklega góður og súkkulaðikakan talsvert betri en maður er vanur frá öðrum veitingastöðum. Frábær endir á ljúfri máltíð.
Helsti vankantur Humarskipsins er tiltölulegahátt verð, eða hartnær 10.000 kr. fyrir 3ja rétta máltíð. Að vísu eru góð 3ja rétta tilboð fyrir hópa, en slíkt vantaði fyrir einstaklinga. Við komum þeirri ábendingu á framfæri og því var vel tekið af sérlega góðri veitingastýru sem sá um borðið okkar. Aftur á móti er matseðillinn mjög fjölbreyttur og skammtarnir það stórir að maður fer þaðan saddur og sáttur. Andrúmsloft er þægilegt og skemmtilegt að vera á alvöru skipi.Tónlistin er að mestu leyti íslensk sem eykur á stemninguna. Ef veður er notalegt er upplagt að skella sér út á þilfar eftir máltíð, jafnvel upp á skipið og sitja afslappaður með drykki, njóta útsýnisins og anda að sér sjávarloftinu. Humarskipið er svo sannarlega eitt sinnar tegundar á Íslandi og við hjá veitingastadir.is getum mælt með þeim. Ekki síst fyrir þá sem vilja koma og prófa eitthvað öðruvísi. Það er einnig opið í hádeginu og þá er mjög gott tilboð í gangi svo sem fiskur dagsins undir kr. 1.000.
Hægt er að sækja sér frekari vitneskju um Humarskipið gegnum veitingastadir.is. Hægt er t.d. að sjá matseðla og myndir af innviðum skipsins.
Til baka
Prenta 