Perlan 3
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Umsagnir um staði - Panorama
Panorama

Veitingastaðurinn Panorama er á áttundu hæð Hótels Arnarhvols við norðurenda Ingólfsstrætis. Húsnæðið er líkast útsýnisturni enda er útsýnið vel frambærilegt með sýn yfir Reykjavíkurhöfn og byggingarsvæði væntanlegs tónlistarhúss með gulum byggingakrönum sem teygja sig til himins. Bílar þjóta eftir sæbrautinni framhjá Seðlabankanum líkt og leikfangabílar úr þessari hæð. Handan Faxaflóans skína Akrafjall og Esjan í sólinni. Innréttingar Panorama eru í naumhyggjustíl, svartar, gráar og jarðlitaðar en lífgaðar upp með púðum úr íburðarmiklu efni og DSR stólunum eftir hina vel þekktu bandarísku arkitekta Charles og Ray Eames. Þegar komið er inn á staðinn frá lyftunni er svæði til vinstri þar sem gestir skoða matseðil og dreypa á drykk, en til hægri eru borðin með hinu víða útsýni. Matreiðslumeistarar Panorama reiða fram rétti sem telst til fransk-skandinavíska eldhússins. 

Matseðillinn var hnitmiðaður þegar við heimsóttum staðinn í apríl, með fjórum forréttum og fimm aðalréttum, og loks geta gestir valið úr þremur eftirréttum til að toppa máltíðina. Auk þessa er boðið upp á þriggja rétta málsverð á föstu verði, þar sem gestir geta valið milli tveggja rétta af hverri tegund. Við fengum okkur þriggja rétta seðilinn með sínum hvorum valkostinum og voru þeir vel eldaðir og kryddaðir og afar fallega fram bornir. Sama átti við um forrétti og sér í lagi eftirrétti sem sviku engan. En ef til vill hefði maturinn mátt taka ögn skemmri tíma að koma til gesta úr eldhúsinu. En heildar upplifunin var einkar góð. Panorama er einn af yngstu stöðunum í veitingastaðaflóru Reykjavíkur, en sannarlega staður sem matgæðingar gætu sett á sína áætlun.



Til baka       Prenta  
Booking - Visit Visitors Guide 150