Perlan 3
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Uppskriftir - Steiktur kjúklingur
Steiktur kjúklingur

Matarskammtur 4
Tími 1 klst.
Erfiðleikastig Auðvelt

Stórkostlegur steiktur kjúklingurSteiktur kjúklingur

Hráefni

  • 300 g sellerírót.
  • 300 g kartöflur.
  • 125 g smjör.
  • 4 msk ólífuolía.
  • 6 stk heilar tímíangreinar.
  • 5 stk sneiðar parmaskinka (má nota beikon).
  • 1 stk hvítlauksrif.
  • 1 stk hvítlaukur.
  • 1 stk sítróna.
  • 1 stk stór kjúklingur.
  • ½ stk búnt tímían.
  • Salt og nýmalaður svartur pipar.

Matreiðsla

  1. Saxið hvítlauksrifið, skerið parmaskinkuna (beikonið) í litla bita, flysjið þetta gula af sítrónunni og saxið. Rífið timíanið af stilkunum og saxið. Blandið þessu öllu saman í skál og kreistið smjörið saman við. Saltið og piprið.
  2. Losið varlega um bringuhúðina á kjúklingnum, passið að hún rifni ekki.
  3. Komið meirihluta kryddsmjörsins undir húðina og jafnið því á bringuna.
  4. Skerið í lærin niður að beini tvo skurði, ef vill. Þannig verður kjötið mjög mikið eldað á þessu svæði og mjög ljúffengt að margra mati. Nuddið kryddsmjöri í skurðina og á lærin.
  5. Sneiðið sítrónuna og komið sneiðunum fyrir í kviðarholinu.
  6. Skerið sellerírótina og kartöflurnar í bita. Blandið þeim saman í skál ásamt heilum hvítlauksrifum, timíangreinum og ólífuolíu. Saltið og piprið og komið þessu fyrir í kringum kjúklinginn í ofnskúffunni. Bætið endilega við fersku grænmeti s.s gulrótum, rófum o.þ.h.
  7. Steikið á 220°C í 40-45 mín. fyrir hvert kíló. Látið fuglinn standa í 10-15 mín. áður en hann er skorinn.


Til baka       Uppskriftir       Prenta  
Booking - Visit Visitors Guide 150