Perlan 3
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Uppskriftir - Bakað fyllt epli
Bakað fyllt epli

Bakað fyllt epli:
 
Fylling: (passar fyrir 2 epli sem er eftirréttur fyrir 4).
4 döðlur.
5 matsk. Frosið kókoskjöt (fæst hjá Filippseyjabúðinni eða sælkerabúð Nings).
4 saxaðar valhnetur.
Pínulítið grænt kardimommuduft (Filippseyjabúðin og Nings selja grænar kardimommur í heilu, þarf að gera að dufti í morteli).
2 matsk. Hunang (gæða hunang).
 
Öllu blandað saman nema einni matskeið hunangi, hún er sett yfir fyllinguna eftir að eplið hefur verið fyllt.
 
Gat er gert á eplið og kjarninn tekinn úr. Fyllið eplið með fyllingunni, setjið ½ matsk. Af hunangi yfir fyllinguna. Bakið í ofni við 180 ° C í um 20 mínútur eða þar til eplið verður mjúkt. Eplin eru skorin í tvennt, hver eftirréttur er ½ epli borið fram með vanillu ís.
Uppskrift frá Indian Mango


Til baka       Uppskriftir       Prenta  
Booking - Visit Visitors Guide 150