Perlan 3
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Uppskriftir - Karrýrækjuréttur
Karrýrækjuréttur

Matarskammtur 4
Tími 1 klst.
Erfiðleikastig Miðlungs

HráefniKarrýrækjuréttur

  • 500 gr rækjur.
  • 1 pakki hörpudiskur.
  • 1 dós sveppir.
  • 1-2 bréf Karrýhrísgrjón eða Golden rice.
  • 3-4 msk mæjónes.
  • 1 peli rjómi.

Matreiðsla

  1. Hrísgrjónin eru soðin eins og lýst er á pakkanum.
  2. Hörpudiskurinn skorinn í bita.
  3. Mæjónesið sett í skál og rækjunum, hörpudisknum, sveppunum og hrísgrjónunum blandað út í ásamt rjómanum.
  4. Allt sett í eldfast mót og ostur yfir.
  5. Bakið í ofni þar til osturinn hefur brúnast.
  6. Borið fram með ristuðu brauði.
  7. Athugið með hörpudiskinn að á honum er vöðvi sem þarf að taka af (hann er hvítari en hörpudiskurinn sjálfur og auðvelt að plokka hann af).


Til baka       Uppskriftir       Prenta  
Booking - Visit Visitors Guide 150