perlan-allt_i-steik-2012-is
Sumarogsol_jan2012_tveirfyrireinn_825x150
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Uppskriftir - Amerískar súkkulaðibitakökur
Amerískar súkkulaðibitakökur

Matarskammtur 6
Tími 25 mínútur
Erfiðleikastig Auðvelt

Góðar súkkulaðibitakökur, passa best með ískaldri mjólk.Amerískar súkkulaðibitakökur

Hráefni

  • 2 1/2 dl hveiti.
  • 1 1/2 tsk. lyftiduft.
  • 1/4 tsk. salt.
  • 60 g mjúkt smjör.
  • 62,5 ml grænmetisolía (rúml. hálfur dl.).
  • 1 1/4 dl púðursykur.
  • 1 1/4 dl strásykur.
  • 1 egg.
  • 3/4 tsk. vanilludropar.
  • 150 g suðusúkkulaði.

Matreiðsla

  1. Stillið ofninn á 180°C.
  2. Klæðið tvær bökunarplötur með bökunarpappír.
  3. Setjið hveiti, lyftiduft og salt í skál. Hrærið. Geymið.
  4. Þeytið saman með handþeytara í aðra skál: smjör, grænmetisolíu, púðursykur og strásykur.
  5. Setjið eggið og vanilludropana saman við. Þeytið áfram.
  6. Setjið hveitiblönduna saman við "eggjahræruna" með sleikju. Hrærið varlega með sleikjunni en ekki of lengi.
  7. Saxið súkkulaðið og hrærið varlega saman við deigið.
  8. Raðið litlum skömmtum (ein teskeið) af deiginu á plöturnar, hafið tæpa 4 cm. á milli næstu köku.
  9. Bakið í 12-14 mínútur.
  10. Látið kólna og njótið!


Til baka       Uppskriftir       Prenta  
Booking - Visit Visitors Guide 150 SOS banner