perlan-allt_i-steik-2012-is
Sumarogsol_jan2012_tveirfyrireinn_825x150
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Uppskriftir - Sjávarrétta paella
Sjávarrétta paella

Matarskammtur 4-5
Tími 60-90 mínútur
Erfiðleikastig Miðlungs

Þjóðarréttur spánverja.Sjávarrétta Paella

Hráefni

  • 2 msk extra virgin ólifiolíu.
  • 1 stk rauðlaukur.
  • 4 stk hvítlauksrif.
  • 4 stk tómatar, grófsaxaðir.
  • 1/2 tsk safran þræðir.
  • 1 bolli Basmati hrísgrjón.
  • 11 gr kjúklingakraftur "Oscar".
  • 1 1/2 bolli vatn.
  • 1 tsk salt.
  • 1 tsk nýmulin pipar.
  • 170 gr smálúðuflök.
  • 150 gr rækjur.
  • 20 stk kræklinga (má vera í dós).
  • 1/2 bolli ferskar grænar baunir.
  • 1/4 bolli söxuð fersk steinselja.

Matreiðsla

  1. Hitið ofninn í 200°c. Hitið olíuna í pönnu sem má fara inní ofn, steikið hvítlaukinn, laukinn en ekki brúna eða u.þ.b. 3 mínútur, setjið þá tómatana og safranið útí og steikið til viðbóta í ca. 2 mínútur.
  2. Látið suðuna koma upp á vatninu og hrærið kjúklingakraftinum vel saman við.
  3. Hrærið hrísgrjónunum saman og hellið kjúklinasoðinu útí, kryddið með salt og pipar, færið pönnunna ínní ofn og bakið í ca. 35 mínútur eða þangað til að hrísgrjóninn eru orðin mjúk.  Á meðan hrísgrjóninn eru að eldast þá skerið smálúðuna í bita og þrífið kræklingana.
  4. Setjið kræklingana, smálúðubitana, rækjurnar og kryddið með salt og pipar og bakið í ca. 15mínútur í viðbót.
  5. Þegar Sjávarréttar-Paella er tilbúinn þá dreifið steinseljunni yfir og berið fram strax.


Til baka       Uppskriftir       Prenta  
Booking - Visit Visitors Guide 150 SOS banner